Úkraínskur Jón Gnarr?

Svarið við spurningunni gæti verið jákvætt, en ef spillingin og getuleysið í íslenskum stjórnmálum var þess eðlis að Jón Gnarr yrði svarið í borgarmálum Reykjavíkur, er þðrfin fyrir úkraínskan Jó Gnarr yfirþyrmandi. 

Spillingin í Úkraínu hefur verið lengi í þvílíkum hæðum, að vafasamt er að nokkur von sé til þess að vinna bug á henni. 

Eitt fleygasta svar Jóns Gnarr á sínum tíma var þegar hann var spurður álits í Reykjavíkurflugvallarmálinu.

Hann svaraði: "Ég veit það ekki. Ég hef enga reynslu af því að flytja flugvöll." 

Og grínistinn í Úkraínu gæti svarað á svipaðan hátt, ef hann er spurður hvort og hvernig hann ætlaði að vinna bug á spillingunni í Úkraínu:

"Ég veit það ekki. Ég hef aldrei áður lagt niður spillingu." 


mbl.is Grínisti með mesta fylgið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

Við skulum vona ekki, Úkraínumanna vegna.  Ekki hata ég þá svo mjög að ég vilji siga einhverjum Gnarr á þá.

Ásgrímur Hartmannsson, 31.3.2019 kl. 13:03

2 identicon

Trump notar sömu taktík með frábærum árangri.

Bíómyndin á RUV á föstudagskvöldið sýndi hvernig "lýðurinn" er afvegaleiddur. Í Róm voru það leikar og brauð en nú er það facebook, twitter og allt hitt.

Var á uppistandi með Eddi Izzard í kvöld hann gagnrýndi hægra liðið fyrir að vera einsog hundar sem gelta - bara til að gelta

En hið sorglega er að uppistadið hjá honum skildi ekkert eftir nema bergmál af hans gelti

Grímur (IP-tala skráð) 31.3.2019 kl. 23:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband