Tækifæri til hindanalítils flæðis rann úr greipum í maí 1968.

Fram að svonefndum H-degi í maí 1968, þegar skipt var úr vinstri umferð í hægri umferð, var umferðin um þann hluta Reykavíkur sem afmarkast af Lækjartorgi, Laugavegi og Hverfisgötu, í góðu flæði í vinstri umferðinni. 

Hún lá sólarsinnis frá Hlemmi niður Laugaveg, í hægri beygju um Lækjartorg, upp Hverfisgötu og í hægri beygju til suðurs austan við Hlemm, eða Vatnsþróna eins og staðurinn var oft kallaður þá. 

Þegar skipt var í hægri umferð, hefði verið eðlilegast að snúa umferðinni við og fara niður Hverfisgötu, í vinstri beygju við Lækjartorg, upp Laugaveg og í vinstri beygju yfir á Hverfisgötu við Vatnsþróna. 

Hinum eðlilegu og hindranalitlu beygjum um þennan hring hefði verið við haldið.

En það voru of miklir áætlaðir hagsmunir kaupmanna og rótgróin íhaldssemi, sem komu í veg fyrir þetta. 

Kaupmenn við Laugaveg óttuðust að missa frá sér viðskiptavini til vaxandi verslunar við Hverfisgötu. 

En með því að skipta ekki um akstursstefnur og hafa hindranalítið hringflæði í hægri handar umferð með vinstri beygjum um þennan hluta borgarinnar, varð til sú flækja á götunum kringum Hlemm sem enn er við lýði. 

1968 sást mönnum líka yfir það, að Hverfisgatan var nýrri gata en Laugavegur og bauð upp á tvöfalda umferð, sem ekki var sett á fyrr en nokkrum áratugum seinna þegar menn áttuðu sig á þeim möguleika. 

Nú er að vísu að komast í framkvæmd meiri gangandi umferð en áður var, með tilheyrandi truflunum á flæði bíla, svo að slíkt flæði verður þá hvort eð er aldrei á þessu svæði. 


mbl.is Umferð beint upp Laugaveg í sumar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ómar ég man eftir þessu og lenti sjálfur í hremmingu snemma þann morgun þegar ég var að ná í Björgunarsveitarfélaga úr Ingólfi en tók umferðahringin við Sögu vitlaust. Hæalf aumingjalegt. Ómar viltu horfa á NASA Utube á síðunni minni og kommentara. Hér er reyngar slóðin.Viltu commenta þar https://youtu.be/ZHcB5EFDylc   

Valdimar Samúelsson, 10.4.2019 kl. 10:38

2 Smámynd: Hallgrímur Hrafn Gíslason

Ómar, ???????  er ekki alveg að skilja, núna er þessi hringur án þess að þvera umferð þegar þú beygir til hægri úr Bankastræti í Lækjagötu og til hægri upp Hverfisgötu og síðan hægri inn á Snorrabraut og hægri niður Laugaveginn

Hallgrímur Hrafn Gíslason, 11.4.2019 kl. 12:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband