Bólusetningar lögðu grunn að langlífi núlifandi jarðarbúa.

Það er svo margt sinnið sem skinnið segir máltækið, en samt er merkilegt að það skuli vera 4% fólks sem hefur enga trú á því fyrirbrigði sem framar flestu skilaði mannkyninu mun lengra lífi að meðaltali en áður var. 

Átakanlegt var í vetur að hlusta á upplestur á þeim, sem hvíla í Víkurkirkjugarði og heyra nöfn alls þess fjölda kornungra barna og unglinga í æskublóma sem þar hvíla. 

Fyrir meira en 20 árum ákvað síðuhafi að láta það vera að fara í bólusetningu við flensu. 

Og viti menn, næstu rúmum 20 árum fékk ég aldrei neina kvefpest né flensu, og síðara tímabilið sem ég var í föstu starfi hjá Sjónvarpinu var ég með engan, - endurtek, - engan veikindadag. 

En þetta var auðvitað of gott til að vera satt, því að í vor fékk ég heiftarlega flensu sem endaði með lyfjagjöfum gegn lungnabólgu, sem komin var til skjalanna í fyrsta sinn á ævinni. 

Og nú er runnin upp ný tíð bólusetninga og aukinnar varkárni. 

Eins og svo oft voru bæði slæmar og góðar fréttir varðandi hinn nýja veruleika. 

Slæmu fréttirnar fólust í því að einstöku tímabili í lífi mínu væri lokið hvað varðaði flensu, umgangspestir og jafnvel lungnabólgu. 

Góðu fréttirnar voru hins vegar þær að á rúmlega 20 ára tímabili hafði ég grætt margar vikur samtals, já, jafnvel mánuði þar sem ég var vinnufær í stað þess að kvefpestir, umgangspestir flensa og lungnabólga væru að skerða þrek til vinnu og bærilegs lífs. 

Ofangreint á að vísu aðeins við pestirnar frá 2007. Ekki var ég fyrr hættur föstum störfum en líkamleg áföll af öðru tagi en "pestir" bönkuðu á dyr eins og gengur. 


mbl.is 40% efast um öryggi bóluefna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson


Sæll Ómar,

Þetta lélega Embætti landlæknis (sóttvarnalæknis) hérna er búið að ljúga því að okkur í mörg á, að bóluefni séu örugg og virki, en við erum hætta að kaupa þessar lygar, þú? Ég rétt eins og fleiri eru ekki að kaupa þetta frá þér núna.

Við erum lönguhætt að kippa okkur upp við allan þennan líka einhliða hræðsluáróður, svo og öll þessi sérstöku drottningarviðtöl í Mbl, RÚV, Vísir og DV, þar sem alltaf er passað svona líka sérstaklega vel uppá að minnast aldrei einu sinni á hvað fylgiseðlar segja um innihaldsefni, áhættur, aukaverkanir og alvarlegar aukaverkanir eftir bólusetningar.

Við erum auk þess búin að sjá það að fjölmiðlar hér gera nákvæmlega engin greinamunur á Anti- Vaxxer og EX -Vaxxer, nú og auk þess aldrei einu sinni talað við þá sem eru á móti bólusetningu eða hvað þá fórnarlömb bólusetninga, því það er bara hugsað um það eitt að koma inn þessum hræðsluáróðri fyrir bólusetningum, eða allt fyrir elskulegu bóluefna- og lyfjafyrirtækin, svo að þeir borgi nú "Læknadaga" sem haldnir eru í Hörpu og annað.
Fjölmiðlar hér passa líka sérstaklega vel uppá að tala aldrei við okkur, svo að þeir geti þannig algjörlega hrauna yfir okkur aftur og aftur. Hver var að segja að RÚV þurfti að fara eftir fjölmiðlalögum í þessu sambandi? Ég held þú ættir að kynna þér hvað bókin "Saga Bólusetninga" (eftir dr. Suzanne Humphries) hefur að segja um alvarlegar aukaverkanir og dauðsföll eftir bólusetningar.
KV.   


"2019 DOJ Report on Vaccine Court Reveals Vaccines Continue to Injure and Kill People: $110 MILLION in Damages Paid Out First Quarter"


Image may contain: 1 person, text

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 19.6.2019 kl. 17:01

2 identicon

Þorsteinn - þessum örfáu sem þú TRÚIR að fái fylgikvilla vegna bólusetninga

þeim er bara vel fórnandi fyrir hagsmuni fjöldans

Grímur (IP-tala skráð) 19.6.2019 kl. 20:26

3 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Sæll Grímur, 

Fyrirgefðu en ég er ekki hrifinn af þessum sértrúarsöfnuði ykkar fyrir eiturefnabyrlunum (e. neurotoxins), eða þessari trú og/eða svona trúarofstæki með að þetta eiturefna-drasl eigi að virka, hvað þá með að fórna vissum fjölda af fólki (sem fórnalömbum bólusetninga) með svona líka lygum og blekkingum.
Í dag þá er ekki til ein einasta vísindaleg sönnun fyrir því að bóluefni hafi virkað innanum veika (eða sjúka) einstaklinga, nú og "Vaccine titer test" er EKKI sönnun fyrir því að bóluefni hafi virkað skv. ykkar eigin bókum.
Þetta hjá ykkur er því einfaldlega bara allt saman byggt á trú með að þetta VOODOO- drasl ykkar eigi að virka. Miðað við bæði fórnarlömb bólusetninga og upp gefnar skaðabætur eftir bólusetningar hérna, þá eru tilfellin margfalt fleiri en lyfja- og bóluefnafyrirtækin og ykkar sértrúarsöfnuður er og hefur verið að gefa upp, þú? 
KV.
             

"The Health Resources & Services Administration just released new dollar figures reflecting payouts from the National Vaccine Injury Compensation Program. The payouts for vaccine injuries just went past the whopping $4 billion mark. Using the government’s own conclusion that only 1% of all vaccine injuries are reported, the $4 billion is just the tip of the iceberg. Despite assurances from CDC and our Federal agencies that all vaccines are safe, the payouts say otherwise. Vaccine injuries can and do happen—to previously healthy children and adults. Consumers deserve to know the facts about the full range of vaccine risks."

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 19.6.2019 kl. 21:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband