Skosk Bónusleið, ein þjóð í einu landi.

Síðuhafa minnir að fyrir nokkrum árum hafi það viðmið verið sett í innanlandssamgöngum að hvergi á landinu þyrfi ferðatími til Reykjavíkur að vera meiri en þrjár klukkustundir. 

Þetta var nú gott og blessað, en hins vegar lítils virði ef ferðakostnaðurinn kæmi í veg fyrir að viðkomandi ferðamáti væri nýttur. 

Nú fyrir fáum dögum var minnst á það í fjölmiðli að flugfar frá Egilsstöðum til Reykjavíkur gæti verið ódýrara en ákveðið flug til fjarlægrar borgar í Evrópu.  

Hvað, sem því líður, er augljóst að mismunurinn á ferðakostnaði landsmanna innanlands ýtir undir það fyrirbæri, sem stundum hefur verið kallað að það búi fleiri en ein þjóð í landinu þegar ýmis kjör landsmanna eru skoðuð, svo mikill geti aðstöðumuruinn verið. 

Bónus hefur löngum auglýst að sama verð sé á vörum verslunarinnar alls staðar á landinu. 

Ef fyrirtæki getur staðið að slíku, hljóta stjórnvöld landsins að geta gert svipað og gert er í Skotlandi. 


mbl.is Skoska leiðin strax á næsta ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Á bókað flug frá Keflavík til Zürich, Sviss með Icelandair í nóv. Þarf því að komast daginn áður frá Húsavík til Reykjavíkur. Flugið frá Húsavík til Reykjavíkur kostar kr. 26.800, það sama og ég borgaði fyrir millilandaflugið með Icelandair til Sviss. Ferðatíminn til Zürich er fjórum sinni lengri en ferðatíminn frá Húsavík til Reykjavíkur. Annaðhvort er millilandaflugið of ódýrt eða innanlandsflugið og dýrt. Nema hvort tveggja sé. 

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 26.8.2019 kl. 15:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband