Hópflug er eitt dæmið um fjölbreytnina í ferðalögum.

Þegar upplifun á náttúrunni er annars vegar, er hægt að nota margar aðferðir; ganga, fara á reiðhjóli eða rafhjóli, hesti, bíl eða á flygildum, allt frá eins manns flygildum upp í margra sæta vélar, að ekki sé nú talað um þyrlurnar. DSC00673

Í gær tók fjórir flugmenn sig saman og fóru í hópflug eftir endilöngu hálendinu.

Slíkt flug er ekki aðeins gefandi í alla staði, heldur liður í þvi að viðhalda tilskilinni færni og reynslu til að halda flugliðaréttindum.  

Tveir komu frá Tungubökkum í Mosfellsbæ og tveir komu frá bænum Forsæti í Flóa. 

Hér sjást flugvélarnar fjórar á mynd, sem tekin var ákvörðunarstaðnum,  Sauðárflugvöll á Brúaröræfum með Snæfell í baksýn í fjarska. 

Vélarnar eru, talið frá hægri til vinstri:  TF-ULF, 5 sæta Jodel Ambassador , sem Jón Karl. Snorrason var á: þá TF-ALB; Beryl 750 tveggja sæta flugvél, nýsmíðuð af Alberti Sigurjónssyni;  þar næast TF-OLA, 4 sæta Cherokee Warrior Ólafs Sigurjónssonar, bróður Alberts;  og loks TF-ROS, 4 sæta Jodel Dr.1050, sem síðuhafi flaug.  DSC00659 

Á Sauðárflugvelli snæddu menn nesti sitt og stönsuðu í rúmar tvær klukkustundir í prýðis veðri, sunnan golu eða kalda og um ellefu stiga hita undir heiðskírum himni. 

Þegar leið á daginn fór hitinn í 13 stig, en geta ber þess, að völlurinn er í 660 metra hæð yfir sjávarmáli, sömu hæð og tindur Vífilsfells.  

Þetta var önnur ferðin af tveimur til þremur föstum ferðum síðuhafa á hverju sumri til þess að gera úttekt á vellinum og yfirfara hann, merkingarnar á brautunum fimm, og ástandi þeirra, auk þess sem venjulega er valtað til þess að halda þeim í sem bestu standi. 

Í fyrri ferðinni er völlurinn valtaður eftir þörfum og séð um að merkingar, vindpoki og annað tilskilið sé í góðu lagi. 

Þetta gerist venjulega byrjun júní eða lok maí, oftast nokkrum vikum fyrr en fært verður þana um á bílum. DSC00652

Síðuhafi er umsjónarmaður og ábyrgðarmaðuri vallarins sem er alþjóðlega skráður og viðurkenndur með samtals tæplega fimm kílómetra löngum fimm flugbrautum og algjörlega náttúrugerður.   

Oftast er stansað á vellinum í tvær til þrjár nætur, en ef flogið er frá Reykjavík, er stundum hægt að afgreiða ferðina á einum degi, eins og var gert í gær. 

Ferðafélagar mínir hjálpuðu til við að dytta að ýmsu meðan stansað var, og á leiðinni austur var tekin býsn af myndum, því að allir flugmennirnir eru miklir áhugamenn um myndatökur og skilyrði á miðhálendinu góð, eins og þær myndir bera með sér, sem hér verða birtar frá þessum dýrðardegi. DSC00657

Kverkfjöll eru í flugleiðinni og heilla ævinlega í veðri eins og var í gær. 

Gosið í Holuhrauni 2014 til 2015 var aðeins um kortérs flugleið frá vellinum og sannaði völlurinn gildi sitt þá. 

Það gæti hann gert á ný ef Bárðarbunga lætur til skarar skríða á ný eftir að hafa verið að undirbúa gos síðustu misserin. 

Á myndinni af henni, sem tekin var í gær, sést yfir alla öskjuna með Köldukvíslarjökul í forgrunni, en Kverkfjöll í baksýn. DSC00658

Í suðausturhluta öskjunnar undir ísnum, eru tveir sigkatlar, sem birtust fyrir tveimur árum, en þar hefur mikill jarðhiti brætt sig upp í gegnum ísinn, sem þarna er sennilega um 200 metra þykkur. 

Eystri ketillinn er líklega rúmlega kílómetri í þvermál á milli ystu sprungna og það er að sumu leyti óhugnanlegt að horfa niður um opið í átt til inngangs í víti, ef hugsað er til forns hugsunarháttar varðandi Heklu og annarra eldfjalla. 

Þarna sést rennandi heitt vatn með íshröngli á botni ketilsins. DSC00671

Jón Karl og hans fjölhæfileikafólk, og bræðurnir Ólafur og Albert hafa verið tryggir gestir um langt árabil á Sauðárflugvelli á hverju sumri. 

Heimasmíðaða vélin hans Albert er dýrleg flugvél, aðeins 1100 pund, eða 500 kíló að þyngd, og knúin 160 hestafla hreyfli sem gefur henni 1200 feta klifur á mínútu og mun meiri flughraða en flestum öðrum vélum í þessum stærðarflokki. 

Þeir bræður eru landskunnir þúsundþjalasmiðir, hagleiksmenn og snillingar og ekki ónýtt að hafa þrjá laghenta og úrræðagóða menn í heimsókn á vellinum í gær. 

Þrjár af flugvélunum fjórum, sem voru á stjái í gær, eru ekki byggðar úr áli, heldur úr undraefni sem nefnist tré, þ.e. krossviði. 

Sumir hafa á orði að slíkar flugvélar séu fljúgandi vindlakassar!   DSC00670   

 


mbl.is „Ákváðu að gefa veirunni nýtt nafn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"Síðuhafinn er umjónarmaður og ábyrðarmaður vallarins...." Til hamingju Ómar Ragnarsson. Stórkostlegt framtak.

Haukur Kristinsson (IP-tala skráð) 28.8.2020 kl. 18:22

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Kveikjan var flugatvik 7. nóvember 2007 þegar bilun varð í báðum hreyflum Fokkervélar þarna yfir á leið til Egilsstaða, og flugmennirnir tilkynntu farþegum að þeir yrðu að búa sig undir nauðlendingu með slökkt á báðum hreyflunum. 

Slökkt var á þeim fyrri en ákveðið að láta á það reyna að halda áfram meðan hægt væri á hinum. Þannig tókst að komast til Egilsstaða, en farþegar fengu áfallahjálp og ekki að undra. 

Vegna þess að vallarstæðið er algerlega náttúrugert og gekki auk þess árum saman undir heitinu "Flugvöllur" í munni heimamanna, var það óhugaandi tilhugsun ef það gæti ekki nýst sem öryggisflugvöllur fyrir allar flugvélar í innanlandsflugi.

Á næstuu fjórum árum fengust öll tilskilin leyfi, alls tíu, til þess að merkja brautirnar og fá völlinn skoðaðan og samþykktan, en rekstur hans hefur verið þungur baggi vegna þess hve langt hann er frá Reykjavík. 

Ómar Ragnarsson, 28.8.2020 kl. 19:42

3 Smámynd: Halldór Jónsson

bravó fyrir ykkur og ekki hvað síst flugvallarstjóranum Ómari

Halldór Jónsson, 28.8.2020 kl. 20:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband