Ekki mann að sjá í heilum sveitum.

Á ferðalagi um uppsveitir Árnessýslu í gær, var heldur betur öðruvísi um að litast en verið hefur á þessum árstíma svo lengi sem munað verður. Léttfeti við Gullfoss

Á leiðinni frá Skálholti upp að Gullfossi og til baka aftur var ekki að sjá einn einasta mann, nema tvo einstaklinga úr Reykjavík, sem voru saman á ferð í tengslum við lokaathöfn fjöltrúarlegrar ráðstefnu, sem var með miðstöð í Skálholtskirkju dagana 5.- 8. október. 

Allir ferðamannastaðir lokaðir, ekki sála við Geysi og Gullfoss, þótt veðrið væri mjög gott eins og myndirnar hér á síðunni bera með sér þegar þær verða væntanlega settar inn seinna í dag af tæknilegum ástæðum. DSC00804 

"Dauft er í sveitum, hnípin þjóð í vanda" orti Jónas. En þótt þetta ástand nú minni á þessar ljóðlínur úr Gunnarshólma, eru kjör þjóðarinnar nú óendanlega miklu betri til þess að geta samt tekist á við hinn óvænta vanda. 

 

 


mbl.is 54.000 færri frá landinu í sept.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Var ekki búið að banna pestargemlingum úr borginni að þvælast út á land Ómar? Uss og skamm!

Þorsteinn Siglaugsson, 9.10.2020 kl. 10:10

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Einn á ferð á hjóli með grímu og lokaðan hlífðarhjálm getur nú varla úðað miklu framan í fólk, sem hann hittir ekki. 

Ómar Ragnarsson, 9.10.2020 kl. 18:27

3 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Ómar. Ég ætlaði nú ekki að vera leiðinlegur við þig, en þú ert nú samt að setja slæmt fordæmi. Það er búið að biðja fólk um að vera ekki að flækjast út í sveit og þá er það einmitt það fyrsta sem þú gerir embarassed

En það er allavega gott að þú varst með grímu og hjálm.

Þorsteinn Siglaugsson, 9.10.2020 kl. 19:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband