Athyglisverður nýr Fiat 500 rafbíll í samruna bílarisa.

BílaframleiðandINN FSA hefur verið frekar seinn til að tefla fram góðum og nýtískulegum rafbílum, og má sem dæmi nefna það, að rafknúin útgáfa hins vinsæla Fiat 500 bauð ekki upp á nóga drægni. En með samruna FSA og PSA á að breyta þessu. Fiat 500 rafbíll 

Nú hefur Fiat tekið til hendi og gert svo nýjan Fiat 500 að hann á fátt sameiginlegt með bensínknúnu gerðinni nema það að sterkasti kostur hans, eitt best heppnaða og klassískasta útlit allra tíma, er nú flottara en nokkru sinni fyrr. 

Af myndum af nýja bílnum 2021, og af Fiat 500 árgerð 1972 49 árum fyrr, sést alveg einstaklega vel heppnuð eftirlíking, sem bjargaði Fiat fyrir horn á 50 ára afmæli hins eldra árið 2007. Fiat 500 ´72

Og með hagstæðu verði og 42ja KWst rafhlöðu er drægnin í betri kantinum, 320 km, í hinni hörðu samkeppni við Renault Zoe, sem hefur hingað til haft sterka stöðu. 

Auk þess má fá í bílnum ein fullkomnasta sjálfökustýring sem boði er.   

Til þess að búa til pláss fyrir þessar endurbætur er bíllinn 7 sentimetrum lengri, 7 sentimetrum breiðari og 5 sm hærri. Dýrmætt rými fæst án þess að breyta því hve útlit og stærð bílsins heldur áfram að vera einkar aðlaðandi.   

Hægt er að fá nýja Fiatinn með stærðar þakblæju, en það er alveg einstök tilfinning fólgin í því að aka blæjubíll, eiginlega sérstakur lífsstíll.   


mbl.is Risasamruni bifreiðaframleiðenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband