Nú snýst allt um þekkingu á helstu atriðum bólusetninga. -

Kjörorðið í baráttunni við kórónaveiruna hefur verið "Við erum öll almannavarnir."  Í því felst ekki aðeins mikilvægi þess að allir taki þátt í samstilltu átaki í þessari varnarbaráttu, heldur ekki síður að almenn þekking sé næg til þess að sem flestum sé ljóst hvað sé réttast að gera. 

Síðuhafa var til dæmis ekki ljóst í þau rúmlega 20 ár sem hann fékk aldrei flensuspraustu,  að almennar bólusetningar gefn flensu gætu hjálpað til að skapa svonefnt hjarðónæmi. 

Ummæli Kára Stefánssonar í dag gefa til kynna að það sé ekki síður mikilvægt fyrir þá sem mest vita um sjúkdóma að vera nokkuð samstíga og sammála í ummælum sínum. 

Eftir að bóluefni er komið til sögunnar þarf aukna umræðu og fræðslu um þann mikilvæga þátt báráttunnar, sem hér eftir þarf að fara að breytast úr varnarbaráttu í sóknarbaráttu. 


mbl.is Lok, lok og læs og allt í stáli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Ég fæ engin laun fyri að vera í ALMANNAVARNAR-NEFND 

og tel mig ekki hafa umboð til að tala fyrir þeirra hönd.

Jón Þórhallsson, 5.1.2021 kl. 13:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband