Ógnin ræktuð og efld á heimsvísu í stað útrýmingar hennar?

Upphafssaga COVID-19 hefur þegar verið skráð í þeim meginatriðum að þessi farsótt átti upphaf í borginni Wuhan í Kína í kringum áramótin 2019-2020 og barst þaðan hraðfari um allan heim. 

Nú stendur yfir næsti fasi málsins í formi upphafs notkunar bóluefnis við veirunni. En jafnframt er þegar að myndast ný og mun verri gróðrastía fyrir stökkbreyttar tegundir vegna yfirþyrmandi misskiptingar efhahagslegra gæða þjóða heims sem nú eru óðum að skiptast í tvo hópa: Ríkari þjóðirnar, þar sem byrjað er að kveða pláguna niður, en hins vegar fátæku þjóðirnar þar sem slíkt er ekki mögulegt vegna fjárskorts og mannfjölda. 

Hjá þessum þjóðum, svo sem hinu ofurfjölmenna Indlandi og öðrum þriðja heims þjóðum er nú að hefjast ræktun og efling stökkbreyttra afbrigða veirunnar, sem vísindamenn óttast að muni tryggja uppgang hennar í mörg ár hér eftir, jafnvel áratugi, og þar með nýja og nýja ógn fyrir alla jarðarbúa, sem á okkar tíma búa í nokkurs konar risa jarðarþorpi sem byggist á óhjákvæmilgum samgöngum. 

Þótt varað sé við þessari ógn með rökum láta ríku þjóðirnar líkast til þrönga og misskilda eigin skammtímahagsmuni verða til þess að á endanum sitji allar þjóðir heims í súpunni. 

Hingað til hafa íslensk stjórnvöld verið harðlega gagnrýnd fyrir að hafa ekki tekið sig strax út úr samstarfi Evrópuþjóða til að graðga til okkar sem allra mest og fyrst af því bóluefni, sem er skortur á og fara fram fyrir allar biðraðir. 

Þessi hugsun virðist nú líkleg til að valda þeirri þróun með því að grípa um sig hjá ríkustu og valdamestu þjóðum heims þar sem hver hugsar bara um sína þrengstu hagsmuni án þess að gæta að afleiðingunum fyrir heildina þegar fram í sækir. 

 


mbl.is B.1.617 – tvöföld stökkbreyting
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ekki allar þjóðir heims, Ómar!

Merkilegt að auðjöfurinn Bill Gates
skuli fyrstur hafa spáð fyrir um Covid-19
og mun það staðfest á Ted þræði sem nokkuð er þekktur
en sami Bill Gates vinnur það afrek 2016
að komast aftan að sjálfum sér með því að segja
að helstu ógnir heims séu loftslagsváin
og lífefnaárásir hryðjuverkahópa. Haaaaaaaaaaaaa???

Vissi sem sagt ekkert hvers eðlis Covid-19 væri
sem hann áður hafði spáð fyrir um!!

Húsari. (IP-tala skráð) 6.5.2021 kl. 12:45

2 identicon

Það er alger fjarstæða að Bill Gates hafi spáð fyrstur um Covid 19 eða svipuð tilfelli. Hann, rétt eins og aðrir sem hafa stuðlað að bættu heilbrigði í þriðja heiminum, þekkja hins vegar hættuna á heimsfaröldrum.

Menn hafa vitað síðan 1918 að slíkt gæti gerst, hvenær sem er. Margítrekað hafa menn haft varann á sér, út af svínaflensunni og ýmsum öðrum sjúkdómum og farið í aðgerðir til að sporna við útbreiðslu.

Af nútímalegri heimildum og þekkingu má nefna bókina "Emerging Viruses" eftir Stephen Morse. Hún kom út árið 1993.

Það er hárrétt sem Ómar nefnir, það er mjög varasamt að láta þriðja heiminn sitja eftir í bólusetningum.

Ragnar (IP-tala skráð) 6.5.2021 kl. 14:38

3 identicon

En hverju breytir það að bólusetja þriðja heiminn en láta vesturlönd sitja á hakanum? Mun þá ekki bara "... hefjast ræktun og efling stökkbreyttra afbrigða veirunnar ..." á vesturlöndum í staðinn? Er það eitthvað betra? Erum við ekki öll eins að þessu leyti skv. nútíma mannfræði?

Og ekki stendur á hámenntuðu vinstri elítunni í háskólasamfélaginu að "Spá heimsendi vegna covid 19" frekar en venjulega. Það er hvert hálmstrá gripið til að spá heimsendi þegar staðreyndin er sú að jarðlífið er alltaf að verða betra, betra og betra fyrir mannskepnuna.

El lado positivo (IP-tala skráð) 6.5.2021 kl. 17:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband