Þekkingarleysi skapar oft skilningsleysi á nýjum aðstæðum í umferðinni.

Síðuhafi varð 2015 þátttakandi því sem nú er neft hjólabylgjan og veldur með hverju árinu nýjum aðstæðum í samgöngukerfi landsins, sem samanstendur af misjafnlega stórum götum, gangstéttum, hjólastígum, göngustígum og hestastígum í þéttbýli og dreifbýli. 

Hratt breyttar aðstæður og nýjabrum hafa valdið því að umferðin í heild líður oft fyrir skort á þekkingu og þeirri miklu hefð, sem Evrópuþjóðir búa að eftir aldar reynslu af nútíma borgarumferð með nýrri samsetningu farartækja og ferðamáta. 

Þetta sést vel þegar verið er á ferð í erlendum borgum þar sem svonefnd vespuhjól gegna lykilhlutverki í því að hin afar þétta og þunga umferð geti yfirleitt gengið upp. 

Hér á landi er enn furðu algengt að sumir ökumenn virðast líta á tilkomu vélhjóla í umferðarmynstri sem óæskilega viðbót eða aðskotahlut, sem steli rými frá bílunum og stækki umferðarteppur. 

Þessu er hins vegar í raun þveröfugt, því að með því að knapinn hefur tekið lítið vélhjól fyrir ferð sína, hefur hann skapað auka rými fyrir einn bíl í staðinn, allt eins í staðinn fyrir bíl, sem hann annars væri á. 

Meðal hjól er um 2 metrar á lengd og 0,80 m á breidd og tekur því aðeins 1,6 fermetra á götunni í stað þeirra 9 fermetra sem meðalstór fólksbíll tekur. 

Fyrir aðeins rúmum áratug var því haldið staðfast fram af mörgum á fundi Slóðavina að menn á torfæruhjólum ættu tvímælalaust að hafa ótakmarkaðan aðgang að öllum slóðum, göngustígum og kindastígum í náttúru Íslands! 

Þegar þeim var bent á, að allir merktir jeppaslóðar landsins væru langt yfir 20 þúsund kílómetrar að lengd, töldu þeir það alltof lítið og töldu lágmark að algert frelsi ríkti fyrir þá.  

Gott er að vita af því að í gangi sé viðleitni til sáttar og samlyndis í allri umferð landsins, jafnt í þéttbýli sem dreifbýli, til aukins öryggis og hagræðis fyrir alla. 

 

 

 

 


mbl.is Öll dýrin í skóginum verði vinir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband