Eftir óvenju mikil snjóalög og svalviðri í vor hefur stefnt í það að hálendisvegir norðan Vatnajökul opnuðust seinna en áraraðir.
Á Norðausturhálendinu eru tveir skráðir flugvellir, við Herðubreiðarlindir og Sauðárflugvöllur á Brúaröræfum.
Rétt innan við þann síðarnefnda, í aðeind 2,5 km fjarlægð, er veðurmælingastöðin Brúaröræfi og er því einstaklega auðvelt að fylgjast með veðrinu þar úr 290 kílómetra fjarlægð.
Nú hefur verið hitabylgja þar í bráðum tvær vikur og í dag var 18 stiga hiti á vellinum, 16 í gær og 20,3 í fyrradag.
Samhliða hitanum var allt að 40 hnúta hnjúkaþeyr þarna, og völlurinn því í svipuðu ástandi og hár í risahárþurrku.
Þegar þess er gætt, að völlurinn liggur 35 metrum hærra yfir sjávarmáli en Vífilsfell, er þetta einstaklega mikill hiti, og í fyrradag var þetta heitasti staðurinn á hálendinu.
Snjóalögum háttar þannig á þessum slóðum, að hálendisslóðirnar í nágrenni vallarins verða ekki færar fyrr en 2-4 vikum eftir að flugvöllurinn er orðinn þurr og snjólaus, harður og vel nothæfur fyrir lendingar flugvéla.
Loftmyndin hér að ofan er tekin vorið 2018 þegar völlurinn var orðinn opinn þótt ófært væri allt í kringum hann.
Völundur Jóhannesson hefur haft sumarsetu í Grágæsadal ío nágrenni vallarins um áratugaskeið og segir eftir könnunarferð á jeppa í fyrradag, að af hæðinni vestur af Kárahnjúkastíflu megi sjá á skafli, sem sést þaðan og er utan í svonefndri Prestahæð, 6 km frá Sauðárflugvelli og 14 km frá Grágæsadal, að skammt kunni að vera þar til leiðir opnist og að völlurinn kunni að vera orðinn nothæfur nú þegar.
Við Völundur eru alltaf í nánu sambandi þegar svona stendur á og framundan er tími, sem í fyrra var heilum mánuði fyrr hvað snerti aðstæður til ferðalaga í lofti og á landi, og var það ónvenjulega snemma.
Gæti farið upp í 29 stiga hita | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.