Sjávarútvegurinn norski var í svipaðri stöðu og hinn íslenski í stríðinu.

Það er viðurkennt að íslenskur sjávarútvegur og þar með þjóðin sjálf græddi mikið á stríðinu, sem skóp mestu lífskjarabyltingu hér á landi fram að því. 

Stríðsgróðinn svonefndi var þó dýru verði keyptur hvað varðaði þær þungbæru og miklu mannfórnir sem íslensk sjómanna- og farmannastétt varð að þola. 

Það fór hins vegar ekki eins hátt, að norskur sjávarútvegur var í stöðu til uppgangs, þó ekki hefði verið nema bara vegna þess, að það kostaði mikið að fæða 300 þúsund manna þýskt herlið í landinu. 

Eftir stríðið gerðu Norðmenn réttilega mikið úr fórnum og hetjudáðum norsku andsspyrnuhreyfingarinnar, en hitt fór lægra, að ótrúlega margir Norðmenn gengu í lið með her nasista á austurvígstöðvunum. 

Um allt þetta og margt fleira fróðlegt veit Magnús Þór Hafsteinsson mikið og hefur skrifað um það bækur. 


mbl.is Hinn norski Joseph Göbbels
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nokkrir Norðmenn fóru til Finnlands að berjast við Rússa áður en Hitler réðist inn í Rússland. Þeir komu heim sem meintir svikarar af því að í millitíðinni hafði Hitler ráðist á Rússa sem voru þá orðnir bandamenn, en Finnland í liði  orðið Öxulveldanna.

Rúmenar lentu reyndar í sömu fléttu örlaganna og Finnar.

Aðalsteinn Geirsson (IP-tala skráð) 11.7.2021 kl. 08:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband