Kommúnistar sóttu á 1937 og fengu 8,4 prósent.

Kommúnistaflokkur Íslands var vaxandi í þingkosningum 1937, fékk 8,4 prósent og þrjá þingmenn. 

1938 sameinaðist flokkurinn hluta úr Alþýðuflokknum í Sósíalistaflokknum, en kommarnir höfðu tögl og haldir í þeim flokki alla hans tíð. 

Það er því ekki neitt nýtt að sósíalistaflokkur sé að krækja sér í fylgi hér á landi. 

Nú eru liðin 82 ár frá 1938 og nær enginn man því persónulega eftir sósíalistum og þeim, sem trúðu á þá stjórmálastefnu sem þá gkk undir því nafni. 

Hún var við lýði í Austur-Evrópu allt til falls Berlínrmúrsins og Sovétríkjanna 1989 og 1991. 

Á líftíma þessa valdakerfis voru gerðar uppreisnir gegn því í Austur-Þýskalandi 1953, Ungverjalandi 1956, Tékkóslóvakíu 1968 og í Póllandi um 1980 af fólki, sem trúði því að hægt væri að framkvæma "manneskjulegan og lýðræðilegan sósíalisma". 

Allar voru þessar uppreisnir barðar niður miskunnarlaust með hervaldi. 

Í kosningabaráttunni framundan verður fróðlegt að bera saman stefnu sósíalista nú við stefnu og stjórnarhætti með sama nafni á rúmlega sjötíu ára tímabili á síðstu öld. 


mbl.is Óverulegar breytingar en sósíalistar sækja á
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Halldór Jónsson

Íslenskur kommi sagði við mig í Þyskalandi 1959 að gefnu tilkefni uppreisnar  held ég "að það þarf enga stjórnarsanstöðu þegar stefnan er rétt".Hann er enn á lífi en ég veit ekki um sannfæringuna

Halldór Jónsson, 26.8.2021 kl. 11:06

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband