Nútíma Dunkirk.

Bretum tókst að bjarga 338 þúsund hermönnum sínum yfir Ermasund frá Dunkirk á Frakklandsströnd. 

En þeir neyddust til að skilja eftir nær öll hergögn þessa hers og þau féllu í hendur óvinanna. 

Það fer allt eftir aðstæðum, hve mikið af hergögnum flúins hers fellur í óvinahendur. 

Ef flóttahermennirnir verða að nýta allt sitt afl til að verja flóttann, er ekkert óeðlilegt við það að eyðing hergagna verði ekki í forgangi. 

Í Afganistan var ætlunin að stjórnarherinn fengi hergögnin, en í ljós kom að hann hafði engan áhuga á að verjast og gerði svipað og Glistrup lagði til við Dani þegar Kalda stríðið stóð sem hæst, en það var bregðast þannig við innrás Sovétmanna að láta danska símsvara segja í sibylju: Við gefumst upp.   

 


mbl.is Talíbanar sýna herfangið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Öll lönd skrúfuðu fyrir fjárhagsaðstoð til Afganistan þegar í ljós koma að Talibanar væru þar við völd. Þetta eru ótrúlega háar fjárhæðir sem USA, Norðurlöndin, Þýskaland og fl. hafa verið að senda til Afganistan í formi þróunaraðstoðar og nú er þessum löndum vandi á höndum því allar líkur eru á að almenningur í Afganistan muni nú svelta vegna bágborins efnahagsástands

Lausnin í bili gæti verið að kaupa af Talibönunum hergögnin sem skilin voru eftir 

Grímur Kjartansson, 3.9.2021 kl. 10:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband