Kapphlaup margra eldstöðva?

Áður en Surtseyjargosið og Heimaeyjargosin komu, var sagt að Helgafell væri útdautt eldfjall. 

Ef einhver hefði spáð eldgosi á Reykjanesskaga fyrir tveimur árum hefði verið hlegið að honum. 

Hins vegar hafa Grímsvötn, Hekla og Katla, einkum Grímsvötn, verið líklegust til að gjósa, enda eru Grímsvötn virkasta eldstöð á Íslandi. 

Nú hafa Askja og Öræfajökull bæst í hóp líklegra þáttakenda og þess vegna gætu fimm eldfjöll verið að störfum í einu á þessu ári eða því næsta.  


mbl.is Grímsvötn tilbúin að gjósa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Antonsson

Mikið af misvísandi upplýsingum. Á einum stað sagði að land væri að rísa og jöklar að minnka. Öðrum að 146 ár 2væru 4síðan tvö eldfjöll hefðu gosið á  sama tíma. Í Geldingardal rann gos und1ir hraun og margir héldu  að dyngjugosið hefði  tekið enda. Eldfjallaiðnaðurinn, túrista_ og fjölmiðlar eiga það sameiginlegt að þegar þeir stækka koma fram fleiri tilgátur. Sama má segja um athugasemdir og skoðanir að ógleymdum flokkunum.

Sigurður Antonsson, 16.9.2021 kl. 03:24

2 Smámynd: Ragna Birgisdóttir

Einhvern tímann heyrði ég sagt að þar sem hefur gosið áður getur gosið aftur. Held að það sé að nokkru leyti að koma í ljós hér á landi.

Ragna Birgisdóttir, 16.9.2021 kl. 21:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband