Þjóðin vill persónukjör, beint lýðræði. Loksins skoðanakönnun.

Þess er ekki að minnast að mikið hafi verið spurt í skoðanakönnunum um afstöðu kjósenda til persónukjörs, beins lýðræðis í kjörklefunum. 

En nú kemur í ljós í skoðanakönnun að þjóðin vill þetta. 

En alþingismenn hafa ekki viljað það, af því að þá skapast óvissa fyrir meirihluta þeirra, sem hentar best að geta setið rólegir með ölglasið á kosninganótt og verið "í öruggu sæti.". 

Andmælendur telja þeitta of glannalegt og varasamt. Samt hefur þetta reynst vel í þeim löndum, þar sem það hefur verið reynt. 


mbl.is Kosninganótt líklega spennandi langt fram á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Með því að koma á FORSETAÞINGRÆÐI hér á landi

(eins og er í frakklandi)

 að þá er í raun komið á PERSÓNUKJÖRI 

 

þannig að FORSETI ÍSLANDS  þyrfti sjálfur að leggja af stað

með stefnurnar í stóru málunum 

 

og þó að það þyrfti að kjósa slíkan mann 

í tveimur kosninga-umferðum

þannig að viðkomandi hefði allavega 51% 

kosningamannbærra á bak við sig 

og þannig löglegt umboð til að sigla á RÍKISSKÚTUNNI 

seglum þöndum réttu leiðina inn í framtíðina.

-----------------------------------------------------------------------------

Eðlilegt ástand er að fjöldinn  FLYKKIST UM ÞANN LEIÐTOGA 

sem að er með BESTU STEFNUNA INN Í FRAMTÍÐINA

 

og þannig myndu völd, ábyrgð, fjárhagsáætlanir og laun forseta

haldast betur í hendur heldur heldur en í því flokka-flækju-kerfi 

sem að nú er í stjórnkerfinu hérlendis og víða erlendis í dag.

 

Gætir þú ekki verið sammála mér í þessu máli?

Jón Þórhallsson, 24.9.2021 kl. 14:36

2 identicon

Jón Þórhallsson.

Eitt sinn flykkstust Þjóðverjar um leiðtoga sem var með "Bestu Stefnuna" inn í framtíðina.

Allir vita hvernig fór.

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 24.9.2021 kl. 15:34

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Það eru aðrir tímar í dag. 

Þetta KOSNINGAKERFI hefur virkað vel í frakklandi

 og það er enginn nazismi þar.

Tökum sem dæmi ef að forseti ASÍ myndi bjóða sig fram til forseta íslands;

= Viðkomandi myndi þá leggja sig allan fram um að

JAFNA OG BÆTA KJÖR fólksins í landinu;

er það ekki?

Jón Þórhallsson, 24.9.2021 kl. 17:03

4 identicon

Ef vilji hefði verið fyrir hendi þá hefði verið hægt að hafa allsherjar skoðanakönnun um ýmis efni, t.d. um stjórnarskrármálið, fiskveiðistefnuna o.fl., jafnframt kosningunum. 

Hörður Þormar (IP-tala skráð) 24.9.2021 kl. 18:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband