Æ fleiri munu finna rafbíl fyrir sig.

Fádæma sókn í framleiðslu og framboði æ fjölbreyttari rafbílum er nú í uppsiglingu.  

Gott gengi nýrra lúxusbíla svo sem Mercedes-Benz EQS, Kia EV6 og Texla Y sýnir mikla framþróun dýrustu bílanna, en einnig er í gerjun stóraukin fjölbreytni í framleiðslu "rafbíla litla mannsins." 

Fyrir fimm árum var oft minnst á tveggja sæta svissneska bílinn Microlino hér á síðunni, en það er ekki fyrr á næsta ári, sem búast má við fyrstu bílunum á göturnar af þeirri gerð. 

Fyrir tveimur árum var frumgerðin tekin alveg í gegn og endurbætt stórlega og söluverðið innan við tvær millur íslenskar.  

Í frásögn í Fréttablaðinu í gær sást, að meginatriðin, 17 hestafla vél, 14,4 Kwst rafhlaða og 90 km hámarksrhaði eru áfram við lýði, en hægt verður að fá ódýrari gerð með 5 Kwst rafhlöðu, sem væntanlega verður ætluð fyrir 45 km hámarkshraða og þar með heiumild fyrir 14 ára unglinga í Frakklandi og víðar til að aka bílnum án prófs. 

Á þeim vettvangi eru komnir bílar erlendis, svo sem Citroen Ami, Tazzari Zero og Renault Twizy.Invicta,Tazzari

En uppgefin drægni margra af þessum bílum; upp á 230 kílómetra hjá Microlino;  felur hins vegar í sér miklar ýkjur. Síðuhafi á tveggja sæta rafbíl, Tazzari Zeró, sem er með 12,8 Kwst rafhlöðu og eftir fjögurra ára reynsluakstur er drægnin 90 km á sumrin og um 80 á veturna. Sett verður inn nmynd með honum í notkun í gær. 

Microlino er líklega aðeins léttari en Tazzari Zero, en drægnin er varla meiri en 100 km við íslenskar aðstæður. 

Invicta DSZ er tveggja sæta rafbíll, sem nú er kominn í sölu hjá BL fyrir 2,4 millur, og er 100 kílóum þyngri en Tazzari, en með stærri rafhlöðu, 17 Kwst, sem hefur í reynsluakstri síðuhafa gefið 110-115 km drægni. 

Þótt 20 km viðbót sýnist ekki stór tala, munar mikið um hana hér við sunnanverðan Faxaflóann, því að hún gefur færi á að komast á einni hleðslu fram og til baka austur til Hveragerðis, Reykjanesbæjar og jafnvel Selfoss eða Borgarness.

 

Og hjá BL bíða menn spenntir eftir Dacia Spring, sem er 4 sæta rafbíll og gæti orðið ódýrasti rafbíllinn í flokki 4 sæta bíla. 

Farin er sú leið að láta 44 hestafla vél nægja og að með áherslu á sparneytni megi létta bílinn og skapa sér betri drægni en er á Smart rafbílum.   

Síðan er þess að geta, að með hverju árinu stóreykst úrval notaðra rafbila af fullri stærð fyrir viðráðanlegt verð. 


mbl.is Hitnar undir samkeppni um rafbíla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband