Ísland býr yfir fágætri og verðmætri fjölbreytni.

"Ísland er engu öðru landi líkt" segir í upphafi lýsingar á landinu í vönduðu erlendu riti um "Hundrað undur veraldar", þar sem hinn eldvirki hluti Íslands er talinn eitt af fimmtíu merkustu náttúruundrum veraldar.DSC09729 

Þessi sérstaða felst helst í því, að á hinum eldvirka hluta landsins er að finna fjölbreytni í átökum og afurðum einstæðs samspils elds og íss, sem hvergi annars staðar sést á þurrlendi jarðar. 

Af þessu leiðir, að möguleikar á fjölbreyttri upplifun fyrir ferðafólk eru fyrir bragðið fleiri hér á landi en í flestum öðrum löndum. DSC09730

Þessi fjölbreytni getur þar af leiðandi verið uppspretta mikils úrvals af arðgefandi möguleikum í ferðaþjónustinni.

Dæmið sem sést og viðtengd frétt á mbl.is ber með sér er bara einn af af ótal möguleikum á þessu.DSC09731

 


mbl.is Heilluðust af Íslandi á ION hótelinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband