Margt smátt gerir eitt stórt. Til dæmis meira en 40 pund í dekkjunum.

Stærsti kostur rafbíla er fólginn í yfirburða nýtni rafhreyfilsins miðað við sprengihreyfilinn auk margfalt einfaldari gerðar. Rafhreyfillinn er með meira en 80 prósent orkunýtni, meira en tvöfall hærra hlutfall en sprengihreyflar. 

Þessir yfirburðir hafa verið kunnir í meira en öld, en stærsti kostur sprengihreyflanna átti stóran þátt í því að þeir drápu rafknúnu bílana í dróma allt fram á 21. öldina í krafti yfirburða orkugeymdar eldsneytis miðað við geymd rafhlöðunnar. Þar að auki er það ókostur rafhlaðna að á gefinni vegalengd léttast þær ekkert við það að orkan eyðist, en þyngd eldsneytis minnkar einfaldlega á hverri gefinni vegalengd. 

Allt fram á níunda áratug síðustu aldar yfirsást mönnum þeir miklu möguleikar sem felast í því að minnka loftmótstöðu bíla. 

Táknið cx er notað um loftmótstöðu og voru bílar fyrri hluta síðustu aldar með afar lélega tölu, þar sem flatarmál þess loftrýmis sem bíllinn þurfti að fara í gegnum var margfölduð með loftflæðistölunni, sem var um það bil 1,0 cx á plötu sem færð var standandi lóðrétt í gegnum loftið. 

Ef laginu var breytt í kassa, lækkaði talan niður í um 0,60 cx en lengra komust menn ekki, jafnvel ekki Volkswagen Bjallan, sem sýndist sæmilega straumlínulöguð, en var samt með 0,48 cx.

Honda skutbíll á sjöunda áratugnum, býsna "nútímalegur" á þeim tíma var með 0,55 cx.  

Fram yfir 1980 voru aðeins örfáir bílar með lægri tölu en 0,40 cx.  

Má þar nefna Tatra 87, Tucker ´48, Nash "Bathtube" ´49, Citroen DS ´55, NSU Ro 80, ´67 og Citroen GS´70. 

Upp úr 1970 fór þetta að skána, og Volkswagen Golf ´73 var með 0,41 cx og Fiat Uno með 0,35 cx.  

Audi 100 færði töluna hjá sér niður i 0,32.  

Á síðusut árum eru óteljandi smá og stór atriði nýtt til að auka afköst og orkunýtni bíla, og eiga rafbílarnir, sem sinn drægnisvanda, stóran þátt í því. Sem dæmi má nefna að þakrennur með gamla laginu eins og voru til dæmis á Mini, voru aflagðar.

Þær sýndust ekki geta gert neitt af sér, en það var samt nóg til að brjóta loftflæðið niður yfir yfirbygginguna. 

Annað dæmi: Allt fram undir okkar daga hefur það verið "standard" tala á loftdælum við bensínstöðvar, að þegar ákveðinn tími líður frá því að hætt var að pumpa, færist talan á loftmælinum á dælunni á 29 pund. 

Í rallinu var miðað við 26 pund sem heppilegustu afkasta- eða getutatölu. 

Þessar tölur hafa skyndilega horfið úr bílahandbókum, og sveiflan er engin smásmíði: Úr 29 pundum upp í meira en 40 pund!

Hvers vegna? Vegna þess að ef ná á fram sem minnstri orkueyðslu verður að vera svona hart í dekkjunum. 

Rafhlöður eru þungar, og þess vegna hamast nú bílahönnuðir við að umbylta bílunum til þess að gera þá sem allra léttasta og líka rafhlöðurnar. 

Listinn yfir atriði er óralangur, eins og hvort bora eigi bita með götum eins og á svissneskum osti eða nota plast, koltrefjaefni eða ál í stað glers og stáls. 

Sýnist fáfengilegt, nokkur grömm hér, önnur grömm þar, en með hverri smá léttingu opnast möguleiki til þess að gera aðra hluta bílsins léttari.  


mbl.is Nýr Benz dregur þúsund kílómetra á einni hleðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

40 pund?  Seinast þegar ég tékkaði olli að tjóni á dekkjunum sem var bara ekkert þess virði.

Annars efast ég ekkert um að rafhlöður verði efnisminni.  Tæknin sækir fram.  20 ár í viðbót, og þetta verður þolanlegt.

Annars er drægnivandi rafbíla aðallega hleðzluvandi.  Tími, sko, tími...

Á meðan þetta er í vinnzlu væri gott ef umhverfissinnar hættu að laxera í þann brunn sem rafbílavæðing er.  Þeir keppast við hvr um annan þveran að kúka yfir það concept allt saman.  Ég hef ástæðu til að ætla að þeir hafi enga hugmynd um hvað þeir eru að gera.

Ásgrímur Hartmannsson, 5.1.2022 kl. 20:00

2 identicon

Ómar, þú eini sanni.

Hvað er það sem springur í vélinni í bílnum þínum ?

BÖÐVAR gUÐMUNDSSON (IP-tala skráð) 5.1.2022 kl. 22:00

3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

"Bíllinn minn", sem er lítill rafbíll af gerðinni Tazzari til einkasnatts, gæti kannski skemmst í sprengingu í mótor, ef hann væri bensínbíll með tilheyrandi sprengihreyfli með brunahólfi, eldsneytiskerfi og eldsneytisgeymi.  

Sprengingarnar í brunahólfunum, sem oftast eru fjögur í hliðstæðum bensínbílum, geta orðið allt að 6000 á mínútu á hraðgengum vélum, sem ganga fyrir eldsneyti. 

Engar sprengingar knýja rafhreyfla áfram. 

Ómar Ragnarsson, 6.1.2022 kl. 00:48

4 Smámynd: Hallgrímur Hrafn Gíslason

Ómar, Ef allir bilar á íslandimeð sptengihreifla væru með rafhitun i kælivatni og farþegarymi, litla vél með turbínu og 8 gira tölvuskiptann gírkassa og harðpumpuð dekk, væri hægt að ná eyðslu eldneytis verulega niður og þar með mengun.

Minn 6 ara Subaru eyðir um 15% minna eftir að ég for að hita upp kælivatnið og yfirleitt er frammruðan auð í frosti,

Hallgrímur Hrafn Gíslason, 6.1.2022 kl. 09:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband