Kannski sá Íslendingur, sem komist hefur næst því að vinna leiki einn.

Fyrirsögnin hér að ofan var að vísu um leikmann í sjö manna liði, sem lék að jafnaði gegn öðru sjö manna liði, en vísar samt til þess, að í glæstustu sigrum hans á handboltavellinum snerist allur leikur liðs hans um hann, hann var leikstjórnandinn og hægt var að treysta því, að ef á þyrfti að halda í leik og staðan erfið og tvísýn, gat hann þess utan tekið það að sér upp á eigin spýtur að skora mörkin, sem vantaði upp á. 

Sem þýddi, að ef hann var ekki inni á vellinum, gat það eitt leitt til taps.  

Einhver magnaðasti handboltaleikur, sem Íslendingur hefur spilað, var í úrslitaleik í Evrópukeppni sem félagslið hans Madgeburg lék. 

Yfirburða geta Ólafs Stefánssonar á öllum sviðum handboltans réði úrslitum um það að liðið varð Evrópumeistari. Hann gat skorað mörk á svo fjölbreytilegan hátt og leikið svo glæsilega á mótherjana, að þótt reynt væri að setja hann í sérstaka gæslu og "setja á hann yfirfrakka" var það eins og að stökkva vatni á gæs. 

Hvort sem hann var í sérstakri gæslu eða ekki snerist allur leikurinn í kringum hann í svo miklum mæli, að maður spurði sjálfan sig: Drottinn minn dýri, hvað gerist ef hann meiðist svo að hann geti ekki spilað? 

Til þess kom ekki í þessum leik, en liðið virtist ráða yfir leikaðferðum, sem gengu jafnvel upp þótt gæslumenn Ólafs hefðu sig alla við að taka hann úr umferð.  


mbl.is Telur Ólaf fimmta besta handboltamann sögunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband