Sykurinn er einfaldlega ein stærsta ógn 21. aldarinnar.

Sykurinn er einfaldlega fíkniefni með öllum verstu einkennum slíkra efna. Með hraðri hlutfallslegri fjölgun aldraðra stefnir sykursýkin í að verða eitt helsta heimsböl 21. aldarinnar. 

Það er kaldhæðnislegt að heitið "þjóðarréttur" hefur verið notað um hið séríslenska fyrirbrigði "kók og prinz". 

Kókið hélt innreið sína á stríðsárunum og prinzið kom 1956. Í coladrykkjum er koffín, sem er fíkniefni eins og sykurinn. 

Tölurnar um magnið eru furðu sakleysislegar. 10 grömm af hverjum 100 eru sykur í coladrykkjum og flestum gosdrykkjum, og í flestum tegundum súkkulaðikex er talan um 30. 

En fitan í súkkulaðinu og sætindunum er þar að auki ávanabindandi og veldur því að fólk fitnar og verður hættara við margs kyns sjúkdómum, svo sem hjartasjúkdömum.  

Ofþyngd er því hluti af vandamáli aldarinnar að hún er orðin að alheimsvandamáli. 

Af því að hvers kyns sykraðar matvörur eru ávanabindandi er það auðvitað magnið, sem neytt er, sem getur orðið að bölvaldi. 

Listinn yfir sjúkdómana af völdum sykurneyslu er langur, margir þeirra banvænir; veikluð húð og fleiri líffæri, sem jafnvel getur endað með blindu og aflimun.    


mbl.is Erfiðast að losna við sykurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Grímur Kjartansson

Sykur og sykur - hvíti sykurinn er ekki náttúruafurð
Heldur margunnin til að sprautast sem best beint í æð gegnum meltingarveginn

    • Hvítur sykur (tvísykran súkrósi). Hreinsaður sykur sem búið er að vinna mikið og bleikja til að gera hann hvítan. Vegna þess hversu mikið hann er unnin, er hann næringarsnauður. „Tómar hitaeiningar”.

    • Púðursykur (e. brown sugar). Er mikið unninn sykur. Hann er tekinn seint í sykurferlinum og við hann er bætt svokölluðum melassa (síróp sem myndast við vinnslu sykurs) sem gerir hann brúnan og breytir bragðinu líka töluvert. Hann inniheldur mikinn raka og verður glerharður ef hann nær að þorna. Því dekkri sykur því meiri melassi.

    • Hrásykur. Óhreinsaður sykur. Það sem er betra við hann en hvítan sykur er að hann inniheldur töluvert meira af stein- og snefilefnum og B-vítamínum. Hann er því betri kostur en athugið að orkuinnihald hans er samt svipað og í öðrum sykri.

    • Náttúruleg sætuefni. Fyrir utan hrásykurinn má nefna hrísgrjónasíróp, epla- og perusíróp og agavesíróp. Innihalda einnig töluvert af stein- og snefilefnum og eru því betri kostur en hvíti sykurinn.

    • Ávaxtasykur (einsykran frúktósi) er sætari á bragðið en hvítur sykur og því hægt að nota minna magn af honum í til dæmis bakstr

    Grímur Kjartansson, 17.8.2022 kl. 13:29

    2 Smámynd: Ásgrímur Hartmannsson

    Ríkið er mesta ógn 21 aldarinnar.

    Þú getur sleppt því að borða sykur, eða baðað þig uppúr honum, þitt er valið.  En ríki hemisins bjóða ekki uppá neitt val.

    Hin og þessi ríki drápu á 20 öld miklu fleiri en allt annað á jörðinni.  Afköstin voru ekkert lítil á öldum áður heldur.

    Ásgrímur Hartmannsson, 17.8.2022 kl. 22:16

    3 Smámynd: Ómar Ragnarsson

    Takk fyrir fróðleikinn í athugasemdunum. Ég sagði nú aðeins að sykurinn væri "ein af" mestu ógnum 21. aldarinnar. 

    Ómar Ragnarsson, 17.8.2022 kl. 22:46

    4 Smámynd: Theódór Norðkvist

    Fyrirsögnin minnti mig á atriðið í Men In Black III, þar sem Agent K (Tommy Lee Jones spyr:

    Agent K:Do you know what's the most destructive force in the universe?

    Agent J:Sugar?

    Agent K:Regret.

     

    Nema þetta átti auðvitað að vera grín hjá Agent J (Will Smith) en kannski var það ekki grín? Miðað við hegðun Will Smith á Óskarsverðlaunaafhendingunni fyrir ekki löngu síðan, virðist ást á sínum eigin maka, ekki alveg vera hættulaust afl. cool

    Theódór Norðkvist, 19.8.2022 kl. 18:55

    Bæta við athugasemd

    Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

    Innskráning

    Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

    Hafðu samband