Reykjavík er oft meira en eitt veðursvæði.

Hið stóra og fyrirferðarmikla fjall Esjan er þannig í sveit sett, að hún klýfur byggðina í Reykjavík oft í sundur í tvennt í hvassri norðanátt, þegar er bálhvasst í vesturhlutanum en á sama tíma jafnvel logn í austurhlutanum. 

Í bálhvassri austanátt getur verið magnað að vera staddur á Borgarholti og horfa sitt á hvað til austurs og vesturs á hina stórkostlegu blindhríð í austri, sem fyllir bæði loft og jörð af snjóblindu og áfærð á sama tíma og aðeins skárra er að sjá í vesturátt. 

Það munar um hamslausan skafrenninginn úr austurátt, sem bætist við ofankomuna austst í Grafarvogsbyggðinni.    

Meðan veðurathugunarstðð var í Elliaðaárstöð var þar hlýjasti ágústmánuður að meðaltali á landinu í skjóli Esjunnar á sama tíma og allt að tveimur stigum svalara var við Veðurstofuna vestur af Efstaleiti. 


mbl.is Ófærðin mest í efri byggðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Alfreð K

Smáathugasemd við orðanotkun:  Einn níræður maður sagði mér, að hér áður fyrr hefði fólk talað um Esju (án greinis), en ekki ,Esjuna'.  Hann taldi, að ,Esjan' (með greini) væri síðari tíma talmáti og í raun ekki alveg rétt íslenska.

Alfreð K, 1.2.2023 kl. 06:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband