LEYNDARMÁL HINNA HORFNU.

Beinafundurinn í Kjósinni leiðir hugann að því hve lengi það getur dregist að horfið fólk finnist þrátt fyrir mikla leit. Sum mannshvörf eru alveg ótrúega dularfull og er skemmst að minnast hvarfs hins heimsfræga flugmanns og loftbelgsfara Steve Fossett í Nevadaeyðimörkinni sem er ekki aðeins sjálfur týndur heldur líka heil flugvél sem hann var á. Maður hélt að með nýjustu geimmyndatækni sem gumar af því að greina smáhluti á jörðinni væri hægt að leysa þetta mál en það er öðru nær.

Ég hef ekið um eyðimerkurnar Mojave, Dauðadal og hluta af Nevadaeyðimörkinni og á erfitt með að skilja hvernig jafn stór hlutur og flugvél skuli geta verið týndur á svæði þar sem sólin skín í heiði mestallt árið, jafnvel þótt þetta svæði sé feikna víðfeðmt.

Við skulum ekki afskrifa að eitthvað tengt Guðmundar- og Geirfinnsmálum finnist þótt síðar verði. Minna má á hinn dularfulla fund vettlings Jóns Austmanns við Blöndugljúfur tugi kílómetra frá Beinhól á Kili eftir að Reynistaðabræður urðu þar úti.

Mér eru ævinlega minnisstæð klaufaleg ummæli talsmanns lögreglunnar í harðri yfirheyrslu Svölu Thorlaciusar í Kastljósi í Sjónvarpi í kringum 1974-75 þegar hún saumaði að honum og sagði sem svo að það væri hart að leitir lögreglu og leitarmanna bæru ekki árangur.

Lögreglufulltrúinn sagði að það væri ekki alveg rétt hjá henni að leitirnar bæru ekki árangur, því að "þær enda oftast með því að finnum að lokum þá týndu steindauða og allt í fína lagi."

Hin óheppilegu ummæli beindust að því að skárra væri að finna eitthvað að lokum en ekki neitt og má út af fyrir sig taka undir það þótt orða hefði mátt það á heppilegri hátt.

Stundum er leitað langt yfir skammt. Mér er minnisstæð hin langa og ítarlega leit að flugvélinni TF-ROM að mig minnir í maí 1973. Nú er ég búinn að fá leiðréttingu í athugasemd og ártalið var 1981. Flugvélin fannst ekki þrátt fyrir margra daga leit á leitarsvæði sem náði allt frá Reykjavík um Arnarvatnsheiði og norðanverðan Kjöl og allan Tröllaskaga allt til Akureyrar.

Ég var á þriðja leitardegi sendur sem leiðsögumaður með stórri þyrlu varnarliðsins sem þaulleitaði allan Tröllaskagann.

Veður var þannig þegar TF-ROM var á leiðinni frá Reykjavík til Akureyrar að það var heiðskírt en svo mikið mistur að skyggni var aðeins nokkrir kílómetrar. Eina svæðið sem þoka var á var á Holtavörðuheiði og vestast áTvídægru á tiltölulega litlu svæði.

Eftir á að hyggja var langlíklegast að flugvélinni hefði verið flogið með þjóðveginum frekar en að fljúga beint þrátt fyrir heiðskírt veður. Ég þekki það vel að flugmenn, sem þekkja landið vel, eru skiljanlega ragir við að fljúga í lélegu skyggni um svæði sem þeir fara sjaldan eða aldrei yfir. Kjölur er gott dæmi um þetta og einnig er öruggara á eins hreyfils vél með tilliti til vélarbilunar að fylgja vegum, túnum og byggð.

Flak flugvélarinnar fannst loks skammt austan við veginn upp á Holtavörðuheiði hjá litlum vötnum, sem með flekkóttri jörð (þetta var snemma vors) gerði illmögulegt að sjá flakið.

Flugmaðurinn hafði fylgt veginum en hrakist inn á heiðina efst í Norðurárdal vegna þokunnar og að lokum lent inni í þokunni og brotlent.

Ef hann hefði hækkað flugið og flogið í mistrinu yfir þokuna hefði hann líklegast komist áfram en honum hefur hugsanlega verið í minni örlög flugvélarinnar TF-REA sem fórst í Snjófjöllum 1973 eftir að flugmaðurinn ætlaði að fljúga upp úr þoku.

TF-ROM var snúið of seint við og því fór sem fór.

Eftir á að hyggja var þetta flugslys af fullkomlega rökréttum orsökum, sem hefðu átt að beina leitinni að mestu að þessu litla svæði austan við Heiðarsporðinn og Biskupsbeygjuna þar sem Holtavörðuheiði tekur við af Norðurárdal.
Þar hafði þokunni létt daginn eftir, mistrið minnkað mikið og komið gott skyggni og gott leitarveður.

Ég hitti nýlega flugmann sem leitaði á þessu svæði og sagði mér frá því að hann hefði haldið að hann hefði flogið yfir flakið, snúið við til að finna það aftur en ekki fundið það og efaðist þá um að þetta hefði verið rétt hjá sér. Hann kvaðst viss um það nú að ef hann hefði haldið áfram að fínkemba betur á þessum stað og fljúga þess vegna aftur og aftur yfir sömu staðina hefði hann fundið flakið.

Þetta skipti svo sem ekki máli hvað varðaði þá týndu að því leyti að þeir höfðu allir látist í þessari harkalegu brotlendingu sem sundraði vélinni í marga hluta. En leitin og óvissan hefðu orðið skammvinnari með markvissari leit.

Síðan má samt deila um það hvort eftir sem áður sé ekki rétt að hafa leitarsvæði sem stærst. Vettlingur Jóns Austmanns sýnir okkur að oft er með ólíkindum hve langt hinir týndu villast.


mbl.is Mannabein fundust á víðavangi í Kjósarhreppi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Agnar Ólason

Mikill dásemdar munaður er að fá þessa færslu upp úr téðri frétt. Hún er innihaldsríkari en allar hinar viðhangandi færslurnar samanlagt. Fyrir venjulegan lesanda eins og undirritaðan þá bætir hún heilmiklu við fréttina og víkkar samhengið allt. Góður!!

Jón Agnar Ólason, 24.3.2008 kl. 11:33

2 identicon

Ég fletti upp í eftirfarandi síðu, http://www.althingi.is/altext/123/s/1088.html en þar kemur fram að TF-ROM, hafi farist eins og þú lýsir, bara 1981, en ekki 1973 eins og þú talar um, en þá fórst reyndar TF-REA.

reynir (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 11:58

3 Smámynd: Guðni Þór Björgvinsson

Góð lesning og fyrir þá sem eru í yngri kantinum einsog ég sjálfur og vilja vita hver vettlingur Jóns Austmanns er, þá er þetta ágætis lesning:

http://www.snerpa.is/net/thjod/reynis.htm

Guðni Þór Björgvinsson, 24.3.2008 kl. 12:07

4 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Þakka Reyni fyrir leiðréttingu á ártali hvarfs TF-ROM, sem ég sagði í fyrstu gerð bloggfærslunnar að hefði týnst 1973 en fórst í raun 1981. Þetta hefði raunar ekki átt að vefjast fyrir mér, því að árið 1981 átti ég flugvél sem ég keypti 1980 og man því vel að ég leitaði á henni en ekki fyrstu FRÚ-nni.

Ég breyti því ártalinu 1i73 í 1981. Takk fyrir.

Ómar Ragnarsson, 24.3.2008 kl. 14:17

5 Smámynd: Villi Asgeirsson

Ég las bloggfærslu fyrir einhverjum vikum síðan, skrifaða af konu sem sagðist þekkja til Guðmundar- og Geirfinnsmálsins. Hún sagðist hafa vitað að lík Geirfinns var falið undir stórum steini í garði í Garðabænum. Þegar hún lét lögreglu vita færði íbúi hússins steinninn, en lögreglan gerði ekkert. Hún kennir um spillingu. Því miður man ég ekki hver þetta var eða hvar bloggið er að finna.

Villi Asgeirsson, 24.3.2008 kl. 20:57

6 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Er það ekki þessi, Villi? http://gudrunmagnea.blog.is/blog/gudrunmagnea/

Gunnar Th. Gunnarsson, 24.3.2008 kl. 21:17

7 Smámynd: Villi Asgeirsson

Þetta er hún, Gunnar. Takk fyrir slóðina.

Villi Asgeirsson, 24.3.2008 kl. 21:43

8 identicon

Sæll Ómar,

hvernig TF_Rom fannst og leitin sjálf er mjög merkileg saga.

Er tilbúinn að segja þér hana yfir góðum kaffibolla.

Kveðja,

Ágúst Guðmundsson

Agust Gudmundsson (IP-tala skráð) 24.3.2008 kl. 22:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband