Möguleikarnir eru óendanlega margir.

Eilífðin og óendanleikinn eru grundvöllur alheimsins, sem á sér engin takmörk.

Tíminn á heldur engin takmörk, hann byrjaði aldrei og hann endar aldrei. 

Möguleikarnir á að líf þróist víðar en á jörðinni eru óendanlega margir og sömuleiðis óendanlega margir möguleikar á lífi af óendanlega mörgum gerðum, bæði efnislegu lífi og vitsmunalegu lífi. 

Hugtökin allt og ekkert eru aðeins til í afmörkuðu rými, -  á svipaðan hátt og árið 2010 er afmarkaður tími en tíminn sjálfur hins vegar óendanlegur. 


mbl.is Áður óþekkt lífgerð fundin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Utan efnis: Mig langar að spyrja þig af hverju þessi frétt hefur aðeins birst á einum fjölmiðli og engin umræða hafi skapast um þetta?

Ef eitthvað er hæft í þessu er þetta einn mesti skadall síðari ára.

Þessi frétt um 12aura á kílóvattstund, er hvergi nema á RUV. Samkvæmt fráttum frá fyrr í ár á norðurál að vera að borga 2.1 krónu kwh.  Hér er talað um hámarkið 1kr kwh.  Ef allt væri eðlilegt væri allt komið í háaloft hér á Íslani við þessa "uppljóstrun". En ekkert heyrist. Hvað er í gangi?

Það að bandaríska ríkið hafi milligöngu um samninga einkafyrirtækja á orkuverði frá landdsvirkjun og hafi pressað það niður um 85% án sýnilergrar fyrirhafnar eða fortalna, er einnig í meira lagi furðulegt og enn meiri ástæða til þess að menn rjúki upp til handa og fóta, en þetta er ekki einusinni nefnt einu orði í fjölmiðlum. How come?

Erum við í einhverju twilight zone hérna?

Jón Steinar Ragnarsson, 5.12.2010 kl. 23:19

2 Smámynd: Svanur Gísli Þorkelsson

Í óendanlegum tíma eru möguleikarnir óendanlegri og allt hefur gerst óendanlega oft áður o.s.f.r. Bíddu, ég hef lesið þetta áður? -:)

Svanur Gísli Þorkelsson, 5.12.2010 kl. 23:33

4 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Já, Svanur minn, og þetta á eftir að verða fest á blað óendanlega oft.

Ómar Ragnarsson, 6.12.2010 kl. 09:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband