Sanna hnífar og hafnaboltakylfur afbrot?

Hnífar og hafnaboltakylfur eru algeng árásar- og morðtæki. Að þessi tól séu á heimilum einhverra er fullkomlega löglegt og þau eru engin sönnunargögn í afbrotamálum nema haldbærir vitnisburðir séu um notkun þeirra. 

Í bardagaíþróttum eins og júdó eru notuð brögð, sem geta valdið dauða, til dæmis hengingartak. 

Það, að einhver eigi júdóbúning heima hjá sér og sé í honum þegar hann tekur heningartak á æfingum eða í keppni sannar ekki eitt og sér að hann taki þetta taki þetta tak nokkurn tíma á fullkomlega löglegan hátt og því síður að hann sé að hengja fólk á þennan hátt.  


mbl.is Mun reyna á ábyrgð Fréttablaðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Kristinsson

Góð ábending, svo eiga allir rétt á að vera taldir saklausir þar til að dómur fellur í máli ákærða og ákæran er staðfest af dómstól, eða kanski er ákærði fundinn saklaus af ákæru.

Dettur í hug hundsmálið hér um árið sem einhver átti að hafa drepið hund og dómstóll götunar dæmdi ákærða sekan. En viti menn, helvítis hundurinn komst í leitirnar, en ákærði varð fyrir verulegum skaða.

Dómstóll götunar er mjög varasamur dómstóll.

Kveðja frá Houston

Jóhann Kristinsson, 10.11.2015 kl. 18:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband