18.9.2015 | 21:14
Ein af mörgum glæsilegum íslenskum konum
Á síðustu árum hef ég hvað eftir annað dáðst að því hve margar frambærilegar og glæsilegar íslenskar konur hafa komist til mannvirðinga og áhrifa. Margar þeirra hafa sótt sér frama í sveitastjórnum og hrifið mig á mannfundum með skörulegum málflutningi. Ingibjörg Þórðadóttir er ein af þessum glæsilegum konum sem komið hafa mér á óvart á mannamótum. Í fyrirlestri í samkomu hjá starfsfólki RUV jós hún af gnægtarbrunni á sviði nútímafjölmiðlunar og naut þar mikillar reynslu sinnar í störfum sínum hjá BBC. Nú hefur hún komist til enn meiri mannvirðingar og skal enga undra. Í krefjandi viðfangsefnum okkar aldar er það helsta von mannkyns að fleiri glæsilegar og hæfileikaríkar konur geti lagt hönd á plóg við að leysa þau tröllvöxnu verkefni sem við blasa.
Krafsar í fjölmiðlaglerþakið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.9.2015 | 14:51
"Hér á reiki er margur óhreinn andinn"
Á leið fyrir Ferðastiklur um Gæsavatnaleið er ekið um slóðir þar sem þykir reimt víða og andar margir á sveimi. Í þessu ferðalagi hafa þegar bæst við magnaðar nýjar sögur sem minna mann óþyrmilega á ljóðlínurnar í hinu fræga ljóði Á Sprengisandi eftir Grím Thomsen.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)