Tvö stórmál þessara daga.

Fólk er flest minnt óþyrmilega á það einhvern tíma á lífsleiðinni hvers virði heilsan er. Án hennar hrynur allt annað að mestu. 

Þessa dagana eru tvö stór hellbrigðistmál í raun mikilvægustu málin í bráð og lengd, annars vegar yfirvofandi hrun heilbrigðiskerfisins og hins vegar loftmengunin, sem eldgosið í Holuhrauni hefur valdið.

Rétt eins og fyrrnefnda málið, er það síðarneffnda stærra en virðist í fljótu bragði.

Ástæðan er sú að áhrif brennisteinsvetnis á lungu og heilsu fólks eru lúmsk og koma ekki öll fram í fyrstu.

Vitað er að blöðrurnar, sem myndast í lungunum við innöndun brennisteinsvetnis, koma ekki að fullu fram fyrr en viku eftir innöndun.

En hitt er ekki vitað til fulls hve mikil áhrif á heilsuna langvarandi innöndun þessa eiturlofts hefur.

Samfélag eins og Höfn í Hornafirði er berskjaldað fyrir áhlaupi gaseitrunarinnar. Það eru ekki til gasgrímur fyrir svona margt fólk og það er ekki hægt að rýma svona stórt samfélag.

Það eru ekki margir sem átta sig á því að sveitirnar sunnan Vatnajökuls eru álíka langt frá gosstöðvunum og Mývatnssveit. Frá Sauðárflugvelli á Brúaröræfum er langstyst til flugvallar í þéttbýli til Hafnar í Hornafirði.  

Fjórðungur landsmanna og yfir 70% búfjár þeirra féll í Móðuharðindunum 1783-84 og ljóst er, að miðað við þau vandkvæði sem eitruinin úr Holuhrauni veldur, er nútíma samfélag er mjög vanbúið að takast á við jafn stórfellda eitrun lofts og varð í Móðuharðindunum.

Í upphafi Seinni heimsstyrjaldannar var dreift gasgrímum til íbúa í London og fleiri stórborgum til að verjast hugsanlegri gasárás.

Slíka árás var aldrei gerð vegna ótta um að henni yrði svarað með gagnárás.

En íslensk eldfjöll spyrja ekki um neitt slíkt heldur fara sínu fram án þess að nokkuð verði við það ráðið. Stórgos á borð við Skáftárelda geta orðið hvenær sem er. 

Þess vegna er löngu tímabært að taka viðbrögð viði vá á borð við Skaftáreld til gagngerrar skoðunar.  


mbl.is Þokkaleg loftgæði eins og stendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hver er munurinn á áhrifum brennisteinsvetnis (H2S) og brennisteinstvíildis (SO2) eins og er grasserandi á Hornafirði?

Þorvaldur S (IP-tala skráð) 27.10.2014 kl. 09:29

2 Smámynd: Hallgrímur Hrafn Gíslason

Ómar, Það er enn búið í Hrafnkelsdal og Fljótsdal, þangað er langstyst frá Sauðárvelliinum þínum

Hallgrímur Hrafn Gíslason, 27.10.2014 kl. 12:59

3 Smámynd: Erlingur Alfreð Jónsson

Vinsamleg ábending: Móðuharðindin voru náttúrulega 1783-84 en ekki 1983-84 eins og misritað er í pistlinum. :-)

Erlingur Alfreð Jónsson, 27.10.2014 kl. 16:38

4 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Takk, Erlingur. Leiðrétti þetta að sjálfsögðu. Og Hallgrímur, ég var ónákvæmur í orðalagi varðandi fjarlægðir frá Sauðárflugvelli, ætlaði að segja að stysta leið til flugvallar í þéttbýli væri til Hornafjarðar. Leiðrétti það líka.

Ómar Ragnarsson, 27.10.2014 kl. 17:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband