Miklum öðrum möguleikum en hóteli er fórnað.

Þar sem nú á að reisa hótel rak öndvegissúlur Ingólfs Arnarsonar á land eftir að hann hafði hent þeim fyrir borð rétt fyrir utan. 

Líklega hefur farið fram helgiathöfn þarna þar sem heimilisguðir Ingólfs í súlunum, friðmæltust við landvættina og súlurnar síðan hafðar í eldhúsi hans og afkomenda hans. 

Þarna væri upplagt að hafa aöstöðu til minningar um þetta og sérstaka hátíð á hverju ári. 

Víkingasafn Íslands er núna í Reykjanesbæ, okkur Reykvikingum til háðungar fyrir það að vanrækja þennan merka þátt forsögu okkar á skammarlegan hátt. 

Til Reykjavík sigldu Ingólfur, Danakonungar og Halldór Laxness. Ekkert merkilegt hefur komið á land í Keflavík, ekki einu sinni Svartidauði. 

 


mbl.is Hafnargarðurinn verði varðveittur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Hvaða hótel ertu að gapa hér um, Ómar Ragnarsson?!

"Til stend­ur að reisa þar versl­un­ar- og íbúðar­hús­næði.

Þá á að grafa bíla­kjall­ara á reitn­um sem verður í heild­ina 1.000 fer­metr­ar."

Hins vegar verður hótel og fleiri byggingar við Austurbakka á milli Geirsgötu og Hörpu, sem einnig er stór óbyggður reitur.

Styttan af Ingólfi Arnarsyni er mikil prýði á Arnarhóli en ekki hefur undirritaður séð þar styttu af eiginkonu hans, sem væntanlega var hér einnig landnámsmaður.

Keflavík er einnig í landnámi Ingólfs og þar að auki er Reykjavíkurhöfn gríðarstór, þannig að þar geta menn einnig verið með víkingasafn og öndvegissúlur í eldhúsi sínu.

Þorsteinn Briem, 8.7.2015 kl. 17:10

2 identicon

Kom e,kert til Keblavíkur,hvað með HERINN, ertu að ebna til hrepparígs

Prf Vandráður (IP-tala skráð) 8.7.2015 kl. 19:21

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Þorsteinn Briem, 8.7.2015 kl. 21:29

4 identicon

Hér má sjá vinningstillöguna.

Þorvaldur S (IP-tala skráð) 8.7.2015 kl. 23:45

5 identicon

http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2015/07/03/nytt_hotel_i_laekjargotu_arid_2018/

Þorvaldur S (IP-tala skráð) 8.7.2015 kl. 23:54

6 Smámynd: Þorsteinn Briem

Íslandsbanki hefur auglýst til sölu húsið við Lækjargötu 12.

Þorsteinn Briem, 9.7.2015 kl. 00:10

7 identicon

Og þetta hús, Lækjargata 12, verður rifið og hótel byggt á grunninum undan því og bílastæðunum sitt hvoru megin við það. Í annað þeirra er nú grafið eftir fornleifum og til þess graftar vísar ÓR í pistli sínum.

Þorvaldur S (IP-tala skráð) 9.7.2015 kl. 00:26

8 Smámynd: Þorsteinn Briem

Síðastliðinn föstudag:

"Teikni­stof­an Gláma-Kím varð hlut­skörp­ust í sam­keppni Íslands­hót­ela og Minja­vernd­ar vegna nýs hót­els í Lækj­ar­götu í Reykja­vík. Stefnt er að því að opna hót­elið fyr­ir sum­arið 2018."

"Fram kom í Morg­un­blaðinu 20. nóv­em­ber síðastliðinn að full­trú­ar Íslands­banka ann­ars veg­ar og Íslands­hót­ela og Hafnareyj­ar, dótt­ur­fé­lags Minja­vernd­ar, hins veg­ar hefðu skrifað und­ir kaup­samn­ing vegna Lækj­ar­götu 12. Þar var Íslands­banki lengi með úti­bú."

Nýtt hótel í Lækjargötu

Þorsteinn Briem, 9.7.2015 kl. 00:27

9 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Herinn kom ekki "í land" í Keflavík, heldur í Reykjavík.  Ég er að tala um hafnirnar ef einhverjum skyldi hafa sést yfir það. Og ég er að tala um að ekkert verði við Reykjavíkurhöfn sem sæmir því að þar skuli hið merka upphaf landnáms Íslands hafa farið fram. 

Ómar Ragnarsson, 9.7.2015 kl. 08:36

10 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég tek ofan fyrir Keflvíkingum að hafa drifið sig í að gera það sem Reykvíkingar hefðu átt að vera búnir að gera fyrir löngu. 

Ómar Ragnarsson, 9.7.2015 kl. 08:38

11 identicon

Það væri nú alveg í stíl við íslenska minjavernd að endurbyggja þennan hafnargarð einhvers staðar annars staðar.  Í Fossvogi til dæmis.  

Elín Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 9.7.2015 kl. 08:57

12 Smámynd: Þorsteinn Briem

Reykjavíkurhöfn er gríðarstór og við höfnina eða skammt frá henni getur að sjálfsögðu verið víkingasafn, eins og til að mynda Sjóminjasafnið og "stærsta hvalasýning í Evrópu" á Granda.

Víkingasafn getur að sjálfsögðu verið í einkaeigu.

Þorsteinn Briem, 9.7.2015 kl. 09:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband