Kostur rafhreyfilsins: Samfellt tog.

Helsti kostur rafhreyfilsins, samfellt tog (torque) frá 1 snúningi og upp úr, nýtist vel í hröðun rafbíla. Fyrir nokkrum árum urðu þau tímamót að rafknúinn bíll var fljótastur hina frægu leið upp á fjallið Pikes peak í Klettafjöllunum suðvestur af Denver.

Bulluhreyflar, knúnir bensíni eða olíu, hafa ekkert tog fyrr en hreyfillinn hann fer á snúning og stundum, eins og á flestum vélhjólum, næst hámarkstog ekki fyrr en á 5-7000 snúningum.

Þess vegna krefst bulluhreyfillinn góðs gírkassa eða sjálfskiptingar.

Flestir rafbílar á markaðnum njóta góðs af þessum kosti rafhreyfilins og eru ekki með neina gírskiptingu heldur bara einn gír.


mbl.is Trylltasti tvinnbíllinn á jörðinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er einfaldlega rangt að rafmótorar hafa samfellt tog. Tog þeirra breytist með snúningshraða og er mest við lægsta snúningshraða.

Hábeinn (IP-tala skráð) 17.3.2016 kl. 14:45

2 identicon

...ég held að Ómar sé að tala um hröðun. Samfelld hröðun frá kyrrstöðu þar til hámarkshraða er náð. En hvað veit ég svosem smile

Magnús (IP-tala skráð) 17.3.2016 kl. 14:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband