Lögmál Murphys og Vegagerðin.

Í anddyri Vegagerðarinnar mætti vera stórt skilti með lögmáli Murphys: "Ef eitthvað getur farið úrskeiðis mun það gerast fyrr eða síðar." Af þessu má álykta að ef bíll getur farið yfir á öfugan vegarhelming þá mun það gerast. Ef bíll getur farið út af vegi og fram af hömrum mun það gerast.

Eftirfarandi dæmi um þetta kemur upp í hugann. Í kringum 1990 fjallaði ég í sjónvarpsfréttum um skort á vegriðum í Hvalfirði. Vegagerðin sagði að það væri allt oft dýrt að leggja margra kílómetra vegrið í firðinum. Ég flaug þá á lítilli flugvél eftir veginum og sýndi fram á það með myndum að aðeins þyrfti að setja rið á 1,3 kílómetra.

Vegagerðin má eiga það að rið voru sett á þessa 1300 metra en ekki fyrr en tvö mannslíf í viðbót höfðu tapast.

Það er rétt að Vegagerðin verður að nýta fjármagn sitt vel og rök hennar fyrir 2 plús 1 vegum eru gild að því leyti til að með slíkum vegum, líkt og maður sér í Noregi og Svíþjóð, verður hægt að láta miklu lengri vegarkafla sleppa fyrr við bölvun Murphyslögmálsins en ef aðeins eru lagðir 2 plús 2 vegir.

Til mikils er að vinna. Nú kostar hvert tapað mannslíf íslenska þjóðfélagið 200 milljónir króna. Þá er ótalinn sjúkrahúskostnaður, eignatjón og tilfinningalegt tjón sem ekki er hægt að meta til fjár. Þessi staðreynd mætti líka vera letruð á áberandi stað í anddyri Vegagerðarinnar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjalti Árnason

Ég veit ekki hvaðan þú hefur heimildir þínar, en hér í suður- noregi er ekki mikið um 2+1 vegi. Stjórnvöld hafa spýtt töluverðu fé í það að byggja þá út í 2+2. (þetta voru aðallega smá blettir á "hraðbrautunum")  2+1 þrengjast venjulega fyrr eða síðar og það er ekki minni hætta af því þegar hámarkshraðinn lækkar allt í einu 30-40 km.Vegagerðin breytti umferðarmynstrinu á smá kafla hér í grenndinni á svona vegi. Þeir breyttu því flótlega í 1+1 eftir ótal óhöpp og banaslys. 1+2 er engin góð lausn, sérstaklega ekki þar sem von má eiga á snjó, nema kannski þá sé sett sé upp hindrun á milli. 

Hjalti Árnason, 11.4.2008 kl. 19:26

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Það er rétt hjá þér að það er ekki mikið um 2 plús 1 vegi í Noregi en þeim mun meira í Svíþjóð. Í Svíþjóð sá ég líka mismunandi dýrar gerðir af 2 plús 2. Víðast var það eins og talað er um hér heima, með allbreiðu bili á milli gagnstæðra átta en sums staðar var var þetta líkt og á Miklubrautinni hér.

Það er líkast til ódýrari lausn og ekki mikið dýrari en 2 plús 1.

Ómar Ragnarsson, 11.4.2008 kl. 23:59

3 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

"Lögmál Murphys" er ekki lögmál, heldur grín.

Gunnar Th. Gunnarsson, 14.4.2008 kl. 17:01

4 Smámynd: Pétur Kristinsson

He he, nei hún er einföld útskýring á óreiðukenningunni og gengur út á það að allt það sem getur klikkað mun klikka.

Hins vegar var það grín hjá eðlisfræðingi, sem að ég man ekki lengur nafnið á. Hans lögmál var að Murphy var bjartsýnismaður.

Pétur Kristinsson, 14.4.2008 kl. 19:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband