Sjókvíaeldið og loftlínurnar svipuð trúaratriði.

Svipaðar eru þær að mörgu leyti, mótbárurnar, sem nú eru hafðar uppi við því að sjókvíaeldi í veldisvexti og loftlínurnar í komandi virkjanaflóði fái að tífaldast og jafnvel þrítugfaldast á undrafáum árum.  

Að sama skapi er allt haft á hornum sér varðandi landeldi og raflínur í jörðu,  af og frá að slíkt komi til greina. 

"Skortur á skilgreinduum viðmiðum á þeim kröfum, sem eru gerðar," -  "kalli á verulega aukið skrifræði, aukinn kostnað og óljósan ávinning" eru upphrópanir í svipuðum stíl og búið er að tönnlast á árum saman varandi jarðlínurnar. 


mbl.is Gagnrýna tillögur gegn stroki úr kvíum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hjarta og æðakerfi hafanna"?

Veltihringrásin svonnefnda, sem mikið er pælt í núna, varð fyrst kunn fyrir tilstilli danskra vísindamanna á síðustu árum 20. aldarinnar. 

Danskir vísindamenn á sviði loftslags og hafstrauma "hafa lengið verið öflugir, enda teljast Grænland, Ísland og Færeyjar augljóslega á áhrifasvæði danskra hagsmuna. 

Dansk-íslenski sjónvarpsþátturinn "Hið kalda hjarta hafanna, "sem sýndur var á RÚV 1997 varð að umtalsefni bæði Forseta Íslands og forsætisráðherra, í áramótaávörpum þeirra og bar mikið á milli í skoðunum þeirra í þessu mál. 

Á þeim aldarfjorðungi sem síðar er liðinn, virðist heildarmyndin ekki hafa skýrst neitt, heldur virðast óvissuþættirnir enn fleiri nú an 1997.  

"Hjarta hafanna" sem fjallað var um teygði sig reyndar sem eins konar veltihringrás um Suður-Atlantshaf og Indlanshaf auk Norður-Atlantshafs, og virðist heildarmyndin hafa orðið mun margræðari og takmarkaðri í senn með árunum. 

Enn er rætt um möguleikann á kólnun hafs og veðurfars í norðvestanverðri Evrópu, og er myndin flóknari núna en hér um árið, þegar í alvöru var talað um mikla kólnun. 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Boða stöðvun hafstrauma við Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ferðavenjur seint klappaðar í stein. Gerbyltingin 2003.

Hafi einhver haldið að ferðavenjur Íslendinga hafi öðlast fast form utan lands og innan fyrir nokkrum áratugum, hefur það farið fram hjá honum að úr svo miklu úrvali ferða er að ræða á okkar tímum, að af því leiðir sjálfkrafa að ferðamynstrið er enn síbreytilegt. 

Fyrir aðeins þremur áratugum, á því herrans ári 2002 hafði eitt íslenskt flugfélag í raun einokun á báðum sviðum flugsins, jafnt innanlands sem utan. 

Einhver merkasti viðburður ársins 2003 var yfirleitt aldrei nefndur, hvorki þá né síðar, en það var þegar þessi einokun í áætlunarflugi milli landa var loks rofin.  

Það er engin smáræðis bylting sem síðan hefur verið stanslaust í gangi og er enn á fljúgandi ferð þegar litið er yfir sviðið, eins og það er nú. 


mbl.is Ferðamynstur Íslendinga að breytast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erfitt að spá fyrir um gang gossins. Allur varinn góður.

Eftir því sem meira kemur upp af hrauni í eldgosinu við Litla-Hrút virðist erfiðara að spá um framvindu gossins og einstök uppátæki í gígnum og við hann.  

Þetta ýtir undir nauðsyn þess að koma í veg fyrir að óviðráðanlegt hættuástand verði þegar hrun verður í gígnum og hraunið finnur sér nýja og óvænta framrás og skapar nýtt hættuástand fyrir gangandi gesti.  

Því er allur varinnn góður og því meiri þörf á honum eftir því sem heildar magn ólgandi hrauns vex.  


mbl.is Myndskeið: Gígurinn hrundi að norðanverðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru fréttir af hitabylgjum uppspuni og áróður?

Þessa dagana má sjá harða gagnrýni á samfélagsmiðlum á RÚV, sem skömmuð er fyrir það að vera ein lélegasta fréttastofan á jarðríki, vegna þess að fávísir fréttamenn flytji þar áróðursfréttir af hlýnun loftslags jarðar. 

Í gangi sé áróðursherferð með ýkjum og lygum af uppspunnum fréttum af hitametum, sem séu engin hitamet. Þvert á móti sé það engin frétt þótt veður sé eðlilega heitt beggja vegna Atlantshafs að sumarlagi. 


mbl.is Hitinn þyngir heilbrigðiskerfum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Keníafyrirbrigði á Íslandi? Frumstæður "leikur að eldinum."?

Á þeim árum fyrir nokkrum áratugum þegar Austur-Afríku rallið var eitt litríkasta rallið í Heimsmeistarkeppninni í rallakstr, vakti alveg nýtt fyrirbæri athygli .

Það birtist í þeim  háskaleik, sem hinir fátæku og fáklæddu heimamenn, einkum unglingar léku, og fólst í því að standa grafkyrrir inni á miðri akstursleiðinni og keppa í því að verða síðastir til þess að stökkva frá hinum aðvífandi keppnisbílum. 

Út í frá túlkuððu margir þetta sem tákn um frumstæða og ómenntaða íbúa landsins, en nú kemur í ljós, að jafnvel hér á landi má sjá bregða fyrir svipuðu fyrirbæri hér, þar sem svo sannarlega eigi við sú lýsingin í bókstaflegri merkingu, að fjöldi fólks "leiki sér að eldinum."


mbl.is Hraun rann beggja vegna við ferðahópinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Álíka löng akstursbraut og lengsta flugbrautin á Sauðárflugvelli.

Varla er hægt að hugsa sér ólíkari flugvelli en BIKF og BISA, sem eru alþjóðlegu skammstafanirnar fyrir Keflavíkurflugvöll á Miðnesheiði og Sauðárflugvöll á Brúaröræfum.  

Fyrrnefndi flugvöllurinn er risamannvirki, með tveimur þriggja kílómetra flugbrautum auk akbrauta fyrir flugvélarnar fyrir og eftir flug. 

Keflavíkurflugvöllur er eitt af fjölmörgum dæmum um áhrif gríðarlegra framfara í smíði flugvélahreyfla og flugvéla í Seinni heimsstyrjðldinni því að fram til 1943 urðu rúmlega þúsund metra langar flugbrautir í Reykjavík og Kaldaðarnesi að duga fyrir þáverandi flugvélar Breta og Bandaríkjamenn. 

Kanarnir eyddu svo miklu fjármagni í Keflavíkurflugvöll, að á tímabili var hann sá flugvöllur heims, sem var með lengstu flugbrautirnar. 

Sauðárflugvöllur er svo ólíkur og hægt er að hugsa sér, því að hann  er náttúrugerður malarflugvöllur og engu rótað á vallarstæðinu, heldur aðeins setta niður lausar brautarmerkingar fyrir alls tæplega fimm kílómetra langar flugbrautir. 

Vegna þess að flugbrautirnar eru fimm, geta þær notast sem aksturbrautir fyrir hver aðra, og ef samtals lengd brautanna er skoðuð, er þessi frumstæði völlur með hæstu töluna, næst á eftir Keflavíkurflugvelli. 

Vegna þess að BISA er á skrá yfir alþjóðlega flugvellli, sést á yfirliti um flugvellina í AIP, að flugmenn fletta honum næst mest upp af íslenskum flugvöllum. 

Spinnast oft skondin símtöl milli síðuhafa, umsjónar- og ábyrgðarmanns vallarins, sem gefinn er upp í AIP. 

Einu sinni hringdi einn og spurðist fyrir um vaktatíma, flugvallargjöld og eldsneytissölu og var á þriggja hrayfla Falcon þotu! 

Honum hafði láðst að taka eftir því, sem stóð svart á hvítu í AIP, að þetta væri malarflugvöllur!  


mbl.is Ný akbraut tekin í notkun á Keflavíkurflugvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eftirminnilegir kveðjutónleikar með Lady Gaga.

Tony Bennett háði hetjulega baráttu við sjúkdóminn, sem hér á síðunni hefur verið kallaður óminnishegrinn.  

Á sínum tíma var hægt að sjá umfjöllun 60 minutes í sjónvarpi um tónleika hans með Lady Gaga , þegar hún lokkaði hann fram til að ganga á hólm við óminnishegrann á eftirminnilegan hátt með því að syngja með sér á tónleikum. 

Einnig var lengi vel hægt að sjá kollega hans á netinu, Frankie Laine, koma fram á hljómleikum 93ja ára gamlan og syngja á ný fyrsta lagið, sem hann kom á vinsældalistana sem ungur söngvari, "That´s my desire" og hrífa með því samkomugesti enn á ný, kominn nánast á grafarbakkann. 

Nefna má magnaðar upptökur af tónleikum einhvers mesta skemmtikrafts allra tíma, Sammy Davis jr þar sem hann brillerar í Berlín 1985 í laginu, sem hann kom á toppinn, "The Candy Ma" auk lagsins "Mr. Bojangle.  

Það er óhætt að mæla með ofangreindum upptökum, því að um þær gildir fyrirbæri, sem þekkt er úr bestu hnefaleikabardaga sögunnar, að þeir urðu oft svo góðir af því að báðir boxararnir voru aðeins farnir að dala, en gáfu þess meira af sér. 


mbl.is Tony Bennett látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslenska krafan um að komast allt á Yarisnum sínum. "Kötlujeppinn" kveður.

Á sama tíma og íslenska ferðaþjónustan nýtur góðs af orðspori einstæðrar og ósnortinnar íslenskrar náttúru er það furðu algeng krafa að hverjum Íslendingi sé tryggt aðgengi hverri einustu náttúruperlu landsins á Yarisnum sínum. 

Uppi eru kröfur um að leggja hraðbrautir þvers og kruss um allt hálendið og jafnvel líka að gosstöðvum þegar eldgos eru í gangi. 

Ósnortin náttúra og stórkarlaleg mannvirkjagerð hvar sem er, fara einfaldlega ekki saman. Range Rover Kötlujeppinn AE 039

Tilvist svoefndra jöklajeppa, sem einkum er ætlað að aka í snæviþöktum óbyggðum er hins vegar önnur saga.  

Á vegum þessarar bloggsíðu hafa verið farnar slíkar ferðir síðustu þrjá áratugi til dagskrárgerðar af ýmsu tagi, og í gær var einn dyggasti þjónninn á því sviði kvaddur, fimmtíu ára gamall Range Rover, breyttur á 38 tommu dekkjum, með aldraðri Nissan Laurel dísilvél með forþjöppu. 

1948 var síðuhafi í fyrsta sinn viðurkenndur sem eigandi bils af gerðinni Renault Juvaquatre um tæplega fjögurra ára skeið, og ótal bílar fylgdu síðar í kjölfarið frá 1959 til dagsins í dag. 

Þegar fest voru kaup á gamla Range Rovernum árið 2004 eftir notkun á Toyota Hi-lux fram að því, var ekki búist við langri þjónustu þessa fjörgamla breska öldungs, en það fór á aðra lund, því að hann hefur verið ökufær allt fram til dagsins í dag, lengur en nokkur annar bíll í minni eigu. Suzuki Grand Vitara ´98 35tommu.LM 333

Jón Hólm Gunnarsson "Landroversérfræðingur" hafði gert úr honum jöklajeppa, sem fljótlega gegndi því hlutverki næstu tvo áratugina að gegna gælunafninu "Kötlujeppinn" vegna þess hlutverks hans að standast einfeldnislegrar kröfu yfirvalda í eldgosum að banna umferð allra bíla á víðfeðmum landsvæðum nema þeirra, sem eru með minnst 38 tommu dekk. 

Krafan er einfeldnisleg, því að það eru fleiri stærðir dekkja sem taka þarf með í reikninginn þegar borin eru saman "fótspor" jöklajeppa en ysta ummál dekkjanna eitt. 

Meðal þess sem hefur áhrif er þyngd farartækisins. 

Hefur formúla þess efnis áður verið rökstudd hér á síðunni. Range Rover 73 Kötlujeppinn v Upptyppinga

Nú í haust hefur hins vegar orðið ljóst, að of mikið mál er fyrir síðuhafa að halda sig við Range Roverinn og að hann verði að láta Suzuki Grand Vitara dísil árgerð 1998 á 35 tommu dekkjum nægja, en sá jeppi er 620 kílóum létttari en Range Roverinn og í skárra ásigkomulagi. 

Eftir langar ferðir Rang Roversins um mestallt hálendi Íslands verður hans nú saknað, en bót er þó í máli, að hann fer aftur heim til skapara síns Jóns Hólm Gunnarssonar og aldrei að vita hvað þeim snillingi getur dottið í hug að ætla honum í framtíðinni. 

Á neðstu myndinni er sá gamli á leið frá Öskju að vetrarlagi með Upptyppinga framundan. 


mbl.is Vill ekki leggja nýja vegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Algeng húsráð, sem gott er að hafa í huga.

Allt frá árinu 2015 þegar farið var á rafreiðhjóli frá Akureyri til Reykjavíkur sem knúið var eingöngu með þess eigin rafafli og pedalarnir teknir úr sambandi, hefur Gísli Sigurgeirsson rafeindavirki verið aðað ráðgjafi þessarar bloggsíðu í þessum málum. 

Gísli fékk sér gamalt reiðhjól, sem átti að farga og bjó til úr því rafreiðhjólið Sörla.

Ferðin gekk vel og Sðrli setti met, sem stendur enn: 159 kílómetrar á einni hleðslu eingðngu. 

Þegar minnsti rafbíll landsins kom til sögu, varð fljótlega bilun í snertiskjánum, þar sem sjá má stöðuna á rafhlöðunni hverju sinni. 

Lausn þess mál var sára einföld: Keyptur einfaldur straummælir, sem lesið er af eftir þðrfum á meðan hlaðið er. 

Þessi einfalda aðferð hefur bæði verið fræðandi og nytsamleg. Á mælinum má sjá hvernig amperafjöldinn er venjulega um 8 amper, sem er 2 amperum undir þoli öryggisins. 

Og rafstraumurinn er venjulega í kringum 1,6 til 1,9 kwst. 

í handbók Tazzari bílsins er ráðlagt að leyfa straumnum að vera á hálfri til einni og hálfri klukkstund lengur en framleiðandi bílsins gefur upp. Sá tími nýtist í hleðslunni til að jafna hleðsluna út á milli sellanna. 

Og láta helst ekki líða meira en tvær vikur milli þess að svona aðferð við hleðsluna sé notuð. 

Með því að fylgjast með straummælinum sést vel þegar straumurinn byrjar að minnka í lok hleðslunnar, allt frá 1,36 kwst og niður í 0,1 kwst á meðan staðan á sellunum er að jafnast. 

Besta hitastigið við geymslu á rafhlöðum er um 10 stig, og í langtímageymslu er best að hafa aðeins um 60 prósent á rafhlöðunni. 

Litli straummælirinn er bæði fræðandi, nytsamlegur og mikið öryggistæki.


mbl.is Myndskeið: Rafhlaða springur í hleðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband