Efsta sætið til enda af því að báðir tapa ?

Tyrkneska knattspyrnulandsliðið virðist vera á góðri siglingu um þessar mundir og keppir að því að komast í umspil með því að komast í þriðja sæti riðilsins og fella Hollendinga út.

Hollendingar standa frammi fyrir ögurstundu í næsta leik vegna þess mikla hnekkis sem það getur orðið að komast ekki inn á EM. Þeir verða að vinna Tékka og treysta á að Íslendingar sjái um að Tyrkir haldi ekki þriðja sætinu.  

Bæði Íslendingar og Tékkar eiga á hættu að tapa næstu leikjum sínum, en það myndi þýða óbreytta stöðu þeirra í riðlinum sem tvær efstu þjóðirnar í lokin, með Íslendinga efsta.  

Engum hefði dottið í hug svona staða fyrirfram.   


mbl.is Ísland heldur toppsætinu - Tékkar töpuðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tónn agaskorts var gefinn í fyrri hálfleik.

Eftir að Íslendingar voru í krafti djarflegs leiks komnir í tveggja marka forystu rétt eftir miðjan fyrri hálfleikinn fóru að koma brestir í hinn sænska aga sem hefur einkennt liðið síðustu misseri.

Menn fóru aðeins of langt út úr stöðum sínum og voru aðeins of seinir til baka til að koma vörninni til aðstoðar.

Örlítill herslumunur og einbeitingarleysi á mikilvægum augnablikum voru nóg til að gefa Lettum færi á að jafna leikinn.

Þessi tónn var gefinn strax í seinni hluta fyrri hálfleiks og við hann losnaði liðið ekki í síðari hálfleik.

Nú þarf að skerpa sænska agann og samheldnina til þess að setja undir þennan leka og þá mun sólin skína á heiði að fullu á ný.


mbl.is Jafntefli gegn Lettum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á loksins að fara að dæmi Norðmanna?

Norðmenn komust að þeirri niðurstöðu að eini raunhæfi kosturinn varðandi sjúkrahús í Osló væri að reisa nýtt sjúkrahús frá grunni en fara ekki út í bútasaum, eins og þeir töldu víti til varnaðar í Þrándheimi.

Hvort sjúkrahúsið á Akureyri er alveg sambærilegt við þessi norsku dæmi er erfitt að segja í fljótu bragði.

En setningin: "Nýbygging er eini raunhæfi kosturinn" er vafalaust rétt út af fyrir sig.


mbl.is Nýbygging eini raunhæfi kosturinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ein af komandi afleiðingum launahækkananna ?

Í pistlum hér á síðunni þegar stærstu kjaradeilurnar voru í gangi var farið yfir reynsluna af stórfelldum launahækkunum í þrjá aldarfjórðunga.

Hún var ævinlega sú, að ef hækkanirnar fóru yfir ákveðin mörk, knúðu þær af stað víxlhækkanir launa og verðlags með tilheyrandi verðbólgu og gengisfellingu krónunnar þannig að kaupmáttur jókst sáralítið.

Spurt var hvað hefði breyst, þannig að þetta gerðist ekki nú og bent á, að hlutur sveitarfélaga og ríkis væri meiri nú í launagreiðslum en áður, og þessir opinberu aðilar ætti í meginatriðum aðeins um tvennt að ræða: Að fækka starfsfólki og hagræða eða að hækka opinber gjöld launþega.

Nú hefur fyrsta hækkunin af mörgum dunið yfir hjá Reykjavíkurborg, stórfelld hækkun gjalds fyrir afnot sundlauga, og gefið upp, að það sé aðeins byrjunin.

Litlu sveitarfélögin úti á landi eiga enn erfiðara en hin stóru að mæta launahækkunum starfsfólks og spurningin er aðeins hvort fækkkun starfsfólks og minni þjónusta, hækkun gjalda, eða hvort tveggja fer að dynja yfir.


mbl.is Opinberum störfum fækkar í Borgarbyggð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðeins eftir 22 % af árinu fyrir 58 % útgjaldanna ?

Ef það er rétt hjá Vigdísi Hauksdóttur að 230 milljónum hafi verið varið í viðhaldsframkvæmda á innanlandsflugvöllum í ár, en að 545 milljónir sé hins vegar áætlun Isavia, er ljóst að til þess að þeim peningum verði varið í þessar framkvæmdir þarf að nota 22% ársins til að framkvæma fyrir 58% útgjaldanna.

Þessi 22% ársins eru vetrarmánuðir og vægast sagt bjartsýni að segja að framkvæmdahraðinn verði næstum þrefaldaður á þessum óhentuga árstíma til þess að koma öllu í lóg.BISA.

Af hugsjón held ég úti næst stærsta flugvelli landsins sem öryggisflugvelli á hálendinu og þarf að borga Isavia fyrir það gjöld.bisa_flughla_19_6_2015[1]

Þessi rekstur svona stórs flugvallar næstum því eins langt frá Reykjavík og hugsast getur kostar mig að meðaltali 6-800 þúsund krónur á ári og ég hefði svo sem ekkert á móti því eftir 15 ára rekstur flugvallarins, þar af 5 ár sem skráðum flugvelli viðurkenndum eftir alþjóðlegum reglum, að eitthvert smábrot af þessu fé sem Isavia virðist ekki ætla að geta komið lóg til viðhalds flugvalla sinna, rynni til Sauðárflugvallar, þótt ekki væri nema úr svonefndum samfélagssjóði fyrirtækisins.  

   

 


mbl.is Hálfsannleikur hjá Isavia
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tregðan skaðaði mest.

Tveir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins hafa lent í vandræðum á embættisferli sínum, sem þeir hefðu að mestu getað komist hjá ef þeir hefðu hreinsað málin strax eins vel og þeim var unnt og aldrei dregið neitt undan, heldur hjálpað til við að upplýsa málin.

Í staðinn fór öll orkan í það í upphafi já Hönnu Birnu að bregðast við eðlilegri upplýsingaöflun fjólmiðla sem "ljótum pólitískum leik" og pólitísku samsæri og hjá Illuga var tregðast við að hreinsa málið eftir því sem það var unnt.

Báðir ráðherrarnir eru í hópi yngri ráðherra í gegnum tíðina og hefðu því átt að vera með á nótunum í því umhverfi sem er á upplýsingaöld og öld gegnsæis og hreinna vinnubragða.

 


mbl.is Bætir örugglega ekki stöðu mína segir Illugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einn á vakt við Hverfisgötu.

Kjaramál lögreglumanna eru í miklum ólestri og hafa lengi verið. Upplýsingar um kjör þeirra eru sláandi, en af því að ekkert verkfall fylgir þeim, drukkna þær í flóði annarra frétta.

Yfirvöld virðast yppta öxlum og lögreglumenn eru seinþreyttir til vandræða, en það er grafalvarlegt mál hvernig málum er nú komið.

Dæmin um fjöldaveikindi, lokaðar hverfisstöðvar og eitt útkall á höfuðborgarsvæðinu sýna ástand, sem ekki er verjandi.

Ég get bætt við einu persónulegu dæmi: Þegar stolið var af mér bakpoka með miklu verðmætum fyrir framan nefið á mér, fleira fólki, öryggisvörðum og öryggismyndavélum í anddyri Landsbankans fyrir viku kom í ljós að aðeins einn lögreglumann var að finna í aðalstöðinni við Hverfisgötu.

Þetta var að vísu  á þeim tíma sem skrifstofunum þar er lokað og húsið tæmdist á augabragði vegna fundar lögreglumanna út af kjaramálum, segir samt sína sögu.

Það er óþarfi að hafa orð um ástandið sem tengd frétt á mbl.is lýsir, og er ekki boðlegt í nútíma samfélagi.   


mbl.is Lögregla greinir frá einu útkalli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins og kjötskrokkar í sendibíl Sláturfélagsins ?

Lesa má að í Frakklandi hafi það þótt refsiverð fyrirlitning á mannréttindum fanga, sem ekki reykti, að neyða hann til að deila klefa með reykjandi mönnum.

Með því þótti hafa verið brotið gegn mannlegri virðingu fangans og hann sviptur þeim mannréttindum að fá að forðast hættuna af óbeinum reykingum, - ekki talinn þess virði að mega það.  

Sú spurning vaknar hvort líta megi sömu augum á það, að þegar handteknu fólki í Gálgahrauni var hent inn í sendibíl lögreglunnar og neitað um það að spenna bílbeltin á leiðinni í fangelsi.

Með því voru föngunum send þau skilaboð að þeir væru ígildi kjötskrókka hjá Sláturfélaginu og að fangarnir væru ekki þess virði að vera meðhönandlaðir sem lifandi manneskjur sem fylgdu landslögum um að spenna bílbeltin.  


mbl.is Brutu gegn mannlegri virðingu fangans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loks leyst úr langvinnum vandræðum?

Furða er hve lengi það hefur dregist að gefa notendum facebook kost á að nota eitthvað annað en "like" til að gefa til kynna viðbrögð sín við ýmsu sem þar birtist.

"Like" þarf nefnilega ekki endilega að þýða samþykki við því sem lækað er við og olli þetta vandræðum nýlega vegna þess að viðkomandi var sakaður um að hafa haft velþóknun á ákveðnum atriðum sem birtust á facebook og taka með því afstöðu í málum, sem gerði hann vanhæfan.

Ef stillingin "reactions" hefðí verið til og hún notuð í þessum tilfellum, hefði þetta mál líkast til aldrei risið.  


mbl.is „Like“ hnappurinn að breytast?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sýnd veiði en ekki gefin.

Ef niðurstöður borgarstjórnarkosninga yrðu svipaðar og í skoðanakönnun Viðskiptablaðsins gætu Píratar knúið fram það stefnumál sitt að kosið yrði í þjóðaratkvæðagreiðslu eða atkvæðagreiðslu meðal borgarbúa um framtíð Reykjavíkurflugvallar.

Þeir urði að kyngja þessu grundvallarstefnumáli sínu við myndun núverandi borgarstjórnarmeirihluta þótt það hafi ekki farið hátt.

Einn mjög stór óvissuþáttur er fólginn í skoðanakönnunum varðandi fylgi Pírata í kosningum, sem hefur komið skýrt í ljós í undanförnum kosningum.

Grunnnfylgi þeirra er meðal fólks sem aðhyllist sem mesta notkun netsins, ekki hvað síst í stjórnmálum.

Þetta fólk hefur verið það tregt til að fara á kjörstað, að minnstu munaði að Píratar fengju engan þeirra þriggja þingmanna, sem þeir rétt mörðu að fá í Alþingiskosningunum 2013, vegna hins ósanngjarna ákvæðis í kosningalögum um 5% atkvæðaþröskuld.

28% fylgi í borginni samkvæmt skoðanakönnun er því sýnd veiði en ekki gefin.

En jafnvel þótt Píratar fengju "aðeins" um 20% atkvæða í borgarstjórnarkosningum, yrði staða þeirra mun sterkari til að fara ekki í borgarstjórnarsamstarf nema grundvallaratriði stefnu þeirra varðandi beint lýðræði fáist fram.


mbl.is Píratar stærstir í borginni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband