2.9.2024 | 23:09
Staðreynd: Hnífar eru vopn en ekki varnarbúnaður.
Lögreglumaður benti í gær á ofangreinda staðreynd. Hnífar geta auðveldlega drepið og stóskaðað hverja, sem er, sem er þvert á það álit, sem sífelld hnífavæðing samfélagsmiðlanna og þjóðlífsins hefur verið að byggja upp.
Máltækið "þarna stendur hnífurinn í kúnni" kemur í hugann og gamalkunnugt viðhorf úr bandarísku byssumenningunni hefur barið að dyrum.
Bloggar | Breytt 3.9.2024 kl. 10:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.9.2024 | 16:46
Nýr biskup og sleglnn nýr tónn.
Biskupsvígslan í dag var heilmikil seremonía þar sem áhersla kirkjunnar á kraftmikla boðun fagnaðarerindisins fékk góð skilí ávarpinu hjá hinum nýja biskupi, en síðuskrifari hefur kynnst vel í góðri frammistöðu hennar hjá Grafarvogskirkju.
Það er alltaf hressandi þegar sleginn er nýr og persónulegur tónn, en það var gert í dag.
Myndir: Guðrún vígð sem biskup Íslands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.8.2024 | 22:59
Ómetanlegt náttúrurdjásn.
Kaldá er hluti af stærsta vatnsfalli á Reykjanesskaganum, og rennur neðanjarðar á tuga metra dýpi til sjávar við Straumsvík.
Þar er vatnsmagnið svo mikiið við ströndina að sagt er að áður fyrr hefi sjómenn ekki þurft annað en dýfa höttum sínum í sjóinn til þess að fá sér vatn að drekka.
Vatnið sem fellur í ánni á yfirborðinu er aðeins örlítið brotabrot af heildarmagninu sem Reykjanesfjallgarðurinn beinir til sjávar.
Kaldá er þvílík náttúrurperla að afar mikilvægt er að viðhalda rennslinu í þessu einstæða vatnsfalli.
Síðuskrifari dvaldi í þrjú heil sumur í Kaldarseli árin 1947, 48 og 49 og telur síðan Kaldá í flokki með helgustu vættum landsins.
Uppþornuð Kaldá ekki vandamál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Endalok flugelda, sem brenna upp þegar þeim er skotið á loft, eru þau að brunnið eldsneyti og aðrir hlutar dreifast um stórt svæði sem mengandi rusl, og menga auk þess andrúmsloftið á við hressilegan útblástur.
Þetta er á skjön við þann tilgang að efla umhverfis- og náttúruvernd í formi þjóðgarðal
Eftir situr þá að setjast niður og brjóta heilann um hugvitssama lausn, sem byggist á hugkvæmni og hugviti og gefur hreina og hressilega gleði og ánægju í stað þess að enda sem leifar af mengandi bruna.
Fjáröflunin gegn stefnu þjóðgarðsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
24.8.2024 | 13:54
"Ekki missa af..." Eitt lúmskasta böl nútímans.
Gréta Salóme ræðir á áhugaverðan hátt um um böl, sem hefur heltekið þjoðina síðustu ár í þeim mæli, að jafna má við farsótt. Þetta eru aðeins þrjú orð, sem þulin eru í síbylju í fjðlmiðlum til að heltaka þá, sem heyra þau.
Einna verst haldnir eru dagskrárþulir og þeir sem kynna efni í ljósvakamiðlum, sem hafa smám saman neyðst til að auglýsa sjálfir eð engeinn megi missa af þeim sjálfum. Slík skyldusjálfhælni var óþekkt þar til fyrir nokkrum árum.
Fyrirskipunin um ekki megi missa af neinu í smáu og stóru er dæmi um þá frekju og pressu sem knýr áfram sjúklegt neysluæði okkar tíma.
Óttaðist stöðugt að vera að missa af einhverju | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
22.8.2024 | 12:06
Yfirráð yfir Krímskaganum skipta mestu.
Krímstríðið um miðja 19. öidina bar nafn með rentu eins og saga skagans síðan ber með sér.
Ætlun Krústjofss fyrir sextíu árum að færa yfirráð yfir Krímskaga sem tákn um samheldni sovétlýðveldanna voru ein af þeim mistökum, sem olli því að hann var hrakinn frá völdum.
2014 þraut PÚtín þolinmæðin og ef einhverju er hægt að spá, er langlíklegast að Krímskaginn er og verður raunveruleg þungamiðja stríðsinis, sem núna er háð á þessum slóðum.
Drónaárásir á báða bóga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
19.8.2024 | 22:21
Minnir á gamlan mislestur í sjónvarpsfréttum.
Hér um árið gerðist ýmislegt skondið á tímabili þegar verið var að prófa ýmis nýmæli í lestri í fréttanna.
Nokkur skipti minna á svipaðan misskilning og hönnunarvilluna, sem greint er frá í tengdri frétt á mbl.
Þulurinn bar eitt orðið sérkennilega fram og sagði: "ístru - flanir."
En engin sást ístran, enda var sagt frá ístruflunum í Þjórsá.
Í annað sinn las þulur heiti eins af ríkjum Bandaríkanna á þann skondna að nefna það "Íljóní" um ríkið Illenois.
Örn Árnason rak augun í hönnunarvillu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.8.2024 | 00:10
"Brotmörk" og "viðbragðstími, mældur í mínútum."
Nú eru fyirbrigðin, sem nefnd eru í fyrirsögn þessa bloggpistils, farin að heyrast oftar en áður, þegar leitað er frétta af ástandinu á eldvirka svæðinu við Grindavík.
Með þessu eykst sú þörf, sem er fyrir því að tryggja, að ekki verði mannskaði af líklegum eldsumbrotum inni í kaupstaðnum eða í Svartengi.
Jarðskorpan nálgast brotmörk | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þrjú ensk tökuorð í fyrirsögn þeasa bloggpistils stinga kannski enn í augum og eyrum margra, en öll eiga þau það sameiginlegt að vera í hópi enskra orða, sem lauma sér hundruðum saman dag hvern inn í íslenskt talmál og verða senn ósigrandi. ,
Í tveimur tilfellum bættu viðmælendurnir við "..ef ég má sletta..", sem sýndi vel, þá undirliggjandi ástæðu, að við eigum í vaxandi vandræðum með að hugsa á íslensku en ensku.
Nýi biskupinn gaf sér sjálfum leyfi til að nota orðið konsept í staðinn fyrir íslenska orðið tilhögun.
Flugfélagið Ernir svipt flugrekstrarleyfi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.8.2024 | 00:28
Öðlast stórvígvöllur nýja frægð?
Nokkrir stórir vígvellir síðari heimsstyrjaldarinnar urðu frægastir allra vegna þeirra miklu áhrifa, sem stórorrusturnar á þeim hafði á gang stríðsins.
Allþekkt er orrustan um Stalíngrad, sem menn eru sammála um að olli straumhvörfum í styrjöldinni.
Hitler hafði samt ekki misst vonina, þrátt fyrir hrikalegasta afhroð, sem þýsk hernaðarsaga kunni frá að greina þar sem heill her, sjötti herinn, var hreinlega þurrkaður út.
Sumarið 1942 hafði sumarkoman fært fært Þjóðverjum svo hagfelld skilyrði til hernaðar, að þeir komust lengra austur en nokkru sinni fyrr.
Með því að skófla nýjum ofurskriðdrekum í miklum mæli á vígstöðvarnar sköpuðus skilyrði til að vinna sigur í stærstu skriðdrekaorrustu allra tíma og nýta sér hlykk í legu víglínunnar við Kúrsk.
Tiger skriðdrekarnir nýju og öflugu reyndust hins vegar svo flóknir og dýrir í rekstri og viðhaldi, að fresta varð operation Citadel ítrekað, og þar að auki komust Rússar á snoðir um aðgerðina með þeim ágætum, að þeir lokkuðu í Þjóðverja í gildru, sem olli því að þeir fóru herfilegar hrakfarir í stað sigurs.
Ýmis líkindi eru með Kursk nú og Kursk 1943, en stærðarmunurinn er þó gríðarlegur.
Segjast hafa náð þúsund ferkílómetrum frá Rússum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)