30.12.2007 | 18:29
JÖKLAFERÐ ER EKKI ÞAÐ SAMA OG JÖKLAFERÐ.
![]() |
Að ná til ferðalanganna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
30.12.2007 | 18:26
JÖKLAFERÐ EKKI SAMA OG JÖKLAFERÐ.
Jöklaferð er ekki sama og jöklaferð. Þetta má segja um þær fréttir dagsins að þurft hefði björgunarsveitarútkall til að bjarga ellefu manns af Langjökli. Vönustu jöklafarar landsins geta vel farið í ferðir um jöklana í verstu veðrum ef þeir eru rétt útbúnir. Ég minnist átta daga ferðar á Hvannadalshnjúk vorið 1991, sem ég fór í ásamt fleirum, þegar leiðangursmenn höfðust við þar uppi í tveimur illviðrum sem dundu yfir. Menn höfðust við í jeppunum á meðan þessi veður gengu yfir og héldu siðan leiðangrinum áfram. Þá var ég ekki byrjaður að aka sjálfur eigin jeppum um jökla og lærði mikið af því að kynnast vinnubrögðum leiðangursmanna.
Síðara illviðrið í þessari ferð var svipað og veðrið nú, með hátt í 100 metra vindi á sekúndu í hviðunum.
Á sínum tíma fóru Arngrímur Hermannsson, Valdi rakari og fleiri í langa ferð yfir jöklana þrjá og þurftu að bíða af sér veður margsinnis á þeirri leið án þess að þyrfti að kalla út björgunarleiðangra.
Ferðin á Langjökul nú var hins vegar greinilega ekki í þessum gæðaflokki fyrst það þurfti að kalla út björgunarsveitir og lýsa því yfir í lok erfiðs björgunarleiðangurs að fólkið væri því mjög fegið að hafa verið bjargað. Mér skilst að meðal fólksins hafi meira að segja verið börn.
Fyrirsjáanlegt var að þessir jeppar kæmust ekki niður af jöklinum í því veðri sem spáð var á þeim tíma sem þeir voru á ferð. Í útvarpi glumdu fréttir af því að almannavarnarnefndir yrðu kallaðar saman og nákvæmlega var búið að greina frá því í fjölmiðlum hvenær veðrið skylli á og hve slæmt það yrði.
Um allt land næst útsending RUV frá Gufuskálum og því er erfitt að skilja hvers vegna fólkið fór ekki í tíma niður af jöklinum úr því að það var ekki við því búið að vera þar áfram.
En allt fór vel að lokum og þessi pistill er ekki skrifaður til að ráðast að einum eða neinum heldur til að brýna okkur öll, sem höfum yndi af jöklaferðum, að undirbúa ferðirnar sem best og læra af þeim sem best kunna til verka.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)