"Sjaland sælla her..."

Sjáland er ekki bara þéttbýlt marflatt svæði heldur má finna skógi vaxnar hæðir og jafnvel friðuð svæði eða litla þjóðgarða þar. Í heimsókn hjá Tryggva Felixsyni sem býr í nágrenni Helsingör hefur hann sýnt okkur dæmi um slíkt. Thorsteinn Erlingsson orti á sínum tíma um "...sælla Sjáland hér / sumarið þitt og blómin / ef þú gætir gefið mér /gamla fossaróminn." Hann dáðist að sumarblíðu og gróðri Sjálands en saknaði íslensku fossanna, fossarómsins heima á Fróni, þess hins sama og mönnum er svo mikið í mun nú að þagga niður í. Í sumar stendur til að þagga niður í tugum fossa í Jökulsá á Fljótsdal og Kelduá, meðal annars tveimur samliggjandi fossum í flokki með Gullfossi, fossunum Faxa og Kirkjufossi. Með Norðlingaölduveitu verður þaggað niður í nokkrum fossum Þjórsár, þeirra á meðal Gljúfurleitarfossi sem er álíka stór og Gullfoss og í fossinum Dynk, sem að mínum dómi var flottasti og magnaðasti foss Ísland vegna þess að hann var ólíkur öllum stórfossum Íslands, samansettur af alls átján fossum sem drundu hátt og fékk fossinn af því nafn sitt. Ég segi "var" um Dynk, því þegar hefur verið tekin af honum yfir í Kvílsaveitu 40% hins nauðsynlega vatnsmagns til að hann hann njóti sín. Fossinn er því að líkjast Samsoni án hársins og Norðlingaölduveita fullkomnar útrýmingu Dynks og bræðra hans í Efri-Þjórsá. Ekki þarf að minna á Urriðafoss og Búðafoss í Neðri-ÞJórsá, Ég sæi Torstein Erlingsson í anda á okka tímum fara upp með Þjórsá og andvarpa: "Nú væri Suðurland sælla hér, / sumarið þitt og blómin / ef þú gætir gefið mér / gamla fossaróminn.

Bloggfærslur 17. maí 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband