11.5.2010 | 21:00
Óttablandin ást.
Ég var fyrst sendur í sveit fimm ára gamall að Hólmaseli í Flóa, sem stendur á vesturbakka árinnar.
Út um stofuglugganna heima hér í Stórholtinu hafði Esjan blasað við út um stofu/svefnherbergisgluggann, því að foreldrar mínir leigðu út öll herbergi hæðarinnar og rissins nema þetta eina þar sem við, sex manna fjölskyldan, voru.
En frá Hólmaseli blasti miklu flottara fjall við á austurbakka árinnar, en mér sem barni sýndist hann standa þar í allri sinni stórkostlegu tign og fegurð, baðaður kvöldsól á kyrrum og björtum sumarkvöldum.
Mér fannst þetta fjall svo miklu flottara en Esjan og hafði orð á því. Fólkið á bænum útskýrði það þannig að þetta væri eldfjall sem væri með gíg á toppinum sem spúði eldi upp í loftið og glóandi hraun rynnu út frá því .
Ég átti erfitt með að skilja það af hverju það væri svona hvítt en var þá sagt að enda þótt fjallið væri fullt af eldi væri svo kalt þar uppi að þetta væru ís og snjór. Samt gæti komið aska upp úr fjallinu sem gæti borist um allt og gert all landið svart.
Ég fylltist óttablandinni virðingu gagnvart svo óskiljanlegu fyrirbæri sem þó var svona guðdómlega fallegt.
Síðan þá hefur Eyjafjallajökull átt óttablandna ást mína sem hefur skerpst enn frekar síðustu daga við það að gosið er komið í frekar ógnvænlegan fasa.
Ég er enn ekki kominn til Reykjavíkur til þess að setja á þessa bloggsíðu myndir sem ég tók í dag af fólki, sem stóð uppi á Goðasteini, kletti á vesturbrún gígskálar jökulsins með súlur af ösku og glóandi björgum í návígi.
Má sjá á myndunum, einkum þegar þær eru stækkaðar með því að tvísmella á þær, hvernig svartur jökulllinn milli flugvélarinnnar minnar og fólksins er þakinn gígum eftir glóandi björg sem hafa fallið niður úr mekkinum og gert gíga, allt að tíu metra í þvermál.
Þetta gerðist á fyrstu dögum gossins þegar það var miklu kröftugra en það hefur verið síðustu daga, enda ekki að sjá að neitt bjarg eða steinn hafi fallið þarna síðustu daga.
En fróðlegt er að sjá stærðarhlutföllin.
P. S. Kl. 12:00 12. maí.
Ég hætti við að fara til Reykjavíkur og hef því ekki verið í aðstöðu til að koma myndunum yfir á bloggsíðuna. Vísa til ljósmyndar sem ku vera í Morgunblaðinu í dag og er ein af myndum sem og myndskeiðs, sem Sjónvarpið hefur fengið frá mér. Bendi síðan á blogg mitt á eyjan.is um "útreiknaða áhættu."
![]() |
Gosvirknin helst stöðug |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 12.5.2010 kl. 13:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)