30.3.2011 | 21:18
Íslandi bjargað !
Þegar Siv Friðleifsdóttir sneri úrskurði Skipulagsstofnunar við og leyfði Kárahnjúkavirkjun sagði Þorgerður Katrín í Kastljósi að hún hefði "bjargað Íslandi".
Í framhaldinu hófst ævintýri "athafnamanna", "fjárfesta" og "vogunarsjóða" sem að vísu endaði óvænt 2008.
En nú virðist það vera að hefjast á ný.
Og upphæðirnar, sem nú er veifað, eru miklu stærri en þær sem veifað var 2002.
Þá var startið á "björgun Íslands" sem Þorgerður Katrín talaði um, metið upp á um 400 milljarða á núvirði, en í þetta skipti koma athafnamennirnir, fjárfestarnir og vogunarsjóðirnir með 1700 milljarða inn í landið með því eina litla skilyrði að fá íslenskan ríkisborgararétt með smá tilhliðrun.
Meðal þessara björgunarmanna eru Rússar, en eins og allir vita er talið 99,9% víst Rússar reisi olíuhreinsistöð við Arnarfjörð upp á ca 500 milljarða á núvirði.
Við erum því samtals að tala um ca 2300 milljarða inn í hagkerfið í þessu tvennu. Ekki ónýtt að fá það. Að vísu þarf meira til svo að hægt sé að toppa björgunaraðgerðina 2002-2008, en þá bólgnaði fjármálakerf Íslendinga upp í meira en 5000 milljarða.
Ef við tökum Helguvík og Bakka með gæti upphæðin að vísu farið yfir 3000 milljarða !
Og þegar menn sjá þessar risatölur er ekki ónýtt að 2007-menn eins og Hjörleifur Kvaran, sem er í slagtogi með þessum bjargvættum, geti hjálpað til við að fá Norræna fjárfestingarbankann og fleiri slíka til að veita okkur myndarlega "endurfjármögnun" til að hægt verði að útvega tíumenningunum útlendu þá orku sem þeir þurfa.
Verkefnin núna eiga að vera tengd endurnýjanlegum orkugjöfum en felast alls ekki í því að þessir útlendingar muni ásælast þessa orkugjafa.
Engu að síður þarf þessa orku sem þeir tala um, og þá er að sjá hvaðan við getum fengið peninga til þess að virkja nógu mikið og hvort orka Íslands muni duga til að útvega þá orku sem 1700 milljarða króna fjárfesting mun útheimta, sjö sinnum meiri fjárfesting en Alcoa kom með inn í landið 2002-2007.
![]() |
Vilja ríkisborgararétt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
30.3.2011 | 19:56
Gott hjá Ögmundi.
Flutningur innanlandsflugsins frá Reykjavík til Keflavíkur mun lengja ferðaleið þess sem fer fram og til baka milli Reykjavíkur og Akureyrar um 164 kílómetra. Það er tvöfalt meiri lenging en yrði ef Hvalfjarðargöng yrðu lögðu niður.
Það samsvarar því, í kílómetrum talið, að ökumenn á leiðinni fram og til baka milli Akureyrar þyrftu að aka fyrir Hvalfjörð, fara um Brattabrekku og Laxárdalsheiði og auk þess að krækja út á Hvammstanga og til baka, bæði á leið norður og suður.
Flugvallarsvæðið nú er aðeins 7% af Reykjavík vestan Elliðaáa eða álíka stórt og hafnarsvæðið. Miklabraut ein tekur helming á við flugvöllinn. Engum dettur í hug að flytja höfnina suður til Njarðvíkur eða byggja íbúðabyggð þar sem Miklabraut er.
Þungamiðja íbúðabyggðar höfuðborgarsvæðisins er nú 4 kílómetrum austan við flugvöllinn, austast í Fossvogsdal, ekki í Vatnsmýrinni.
Það er lögmál á heimsvísu að krossgötur laða að sér byggð og hentugast er að hún sé sem næst þeim.
Stærstu krossgötur landsins eru við Elliðaárdal, 5 kílómetrum frá Vatnsmýrinni.
Frá þessum krossgötum er álíka langt, 5 kílómetrar upp á Hólmsheiði. Þar er bæði kaldara, vindasamara og meiri raki en við Skerjafjörð sem þýðir að þar er oftar þoka og meiri hálka en á núverandi flugvallarstæði.
Í stað þess að framkvæma þrjá gerninga: 1. Rífa flugvöllinn í Vatnsmýri. 2. Reisa þar íbúðabyggð. 3. Gera flugvöll á Hólmsheiði -
- væri hægt að framkvæma einn gerning: Reisa íbúðabyggð á Hólmsheiði, sem yrði jafn langt frá krossgötunum og Vatnsmýrin er.
Ögmundur Jónasson tekur að mínu viti skynsamlega á þessu máli, enda hefur ekki verið gætt jafnræðis í rökræðunum um Vatnsmýrina.
Haldin var dýr samkeppni um það hvernig svæðið gæti verið nýtt ef flugvöllurinn færi en engin samkeppni um það hvernig hann og umhverfi hans gætu orðið ef hann er kyrr.
Þar bendi ég sem dæmi á áratuga gamla hugmynd mína um "breyttan og betri flugvöll", þ. e þá að lengja austur-vestur-brautina og gera hana að aðalbraut valllarins, enda er autt svæði við austurenda brautarinnar og sjór við hinn endann, og gera litla 1100 metra braut þar sem nú eru fyrrum byggingar olíustöðvar Skeljungs, sem aðeins yrði notuð í hvössum sunnan- og norðanáttum.
Vísa að öðru leyti í fyrr bloggskrif mín um flugvöllinn með því að slá upp í leitarorðadálkinum efst til vinstri á bloggsíðu minni.
![]() |
Reisi nýtt hús við flugvöllinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
30.3.2011 | 18:40
Þegar bakarinn bakaði vandræði.
Faðir minn var bakri og afi líka. Ég heyrði því ýmsar bakarasögur og veit að ein þeirra var sönn, raunar meira en 50 ára gömul.
Hún kemur mér í hug þegar ég les frétt um rottuna í brauðinu. Kona ein kom æf í bakaríið með brauð, sem hún hafði keypt og heimtaði skýringu bakarans á því að ryðgaður nagli var í brauðinu.
Bakarinn ætlað að reyna að snúa sig út úr þessu með því að afsaka þetta, en málið batnaði ekki við það þegar hann sagði: "Elsku frú, ég bið þig afsökunar á þessu en svona lagað getur alltaf komið fyrir"
Við þetta varð frúin enn reiðari og tók talsverðan tíma fyrir bakarann, sem bakaði vandræði með svari sínu, að róa konuna niður.
Rottur gátu komið við sögu í gamla daga þegar sum bakarí voru í kjöllurum eða bílskúrum.
Ein magnaðasta sagan, sem afi minn Edvard sagði mér, var af rottum, sem stálu eggjum án þess að hægt væri að sjá hvernig þær færu að því, því að eggin voru uppi á borði. Greinilegt var að þett gætu aðeins verið rottur, en með engu móti hægt að ímynda sér hvernig þær kæmu eggjunum af borðinu niður á gólf án þess að brjóta þau.
Bakarinn brá þá á það ráð um hásumar, þegar dauf birta komst inn í bakaríið, að útbúa fyrir sig athvarf þar sem hann gat vanist rökkrinu og fylgst með því sem gerðist án þess að rotturnar yrðu þess varar.
Um miðja nótt komu þær úr felum inn á gólfið og voru þrjár. Tvær stukku upp á borðið og veltu eggi fram á brún þess. Þar hringaði önnur rottan sig utan um eggið og lagðist á bakið með eggið uppi á kviðnum en hélt því föstu þar með fótunum.
Hin rottan ýtti henni fram af borðbrúninni þannig að hún féll á bakið niður á gólfið án þess að eggið brotnaði. Þar kom þriðja rottan, beit í halann á henni og dró hana í burtu!
Sagan sýnir að rottan er afar skynsamt dýr og engin tilviljun að aðeins tvö spendýr lifa allstaðar í jörðinni, allt frá heimskautasvæðum til frumskóga og eyðimarka. Það eru maðurinn og rottan.
![]() |
Setti rottu í brauð og laug upp á bakara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.3.2011 | 12:19
Takmarkanir greindarinnar.
Mælingar á greind eru háðar ákveðnum forsendum, sem geta verið umdeilanlegar, enda settar fram af mönnum, sem hafa ekki jafn mikla greind samkvæmt þessum mælingum eins og þeir greindustu sem mældir eru.
Ótal dæmi eru um manneskjur, sem hafa mjög mikla greind eða gáfur á afmörkuðum sviðum en ekki á öðrum. Stærðfræðisnillingar eru sumir hverjir það sem kallað er þroskaheftir eða háðir miklum takmörkunum á öðrum sviðum mannshugans.
Sumir afburðamenn á ákveðnum sviðum hafa verið algerlega siðblindir og nánast fávitar í því tilliti.
Enginn neitar því að Albert Einstein var yfirburðamaður á sínu sviði og jafnframt mikilhæf persóna að öðru leyti. Og verk þessa mikla snillings og annarra hafa reynst nytsöm í þeirri tækni og vísindum sem hafa verið undirstaða stórkostlegra framfara okkar tíma.
Mennskum mönnum mun aldrei takast að komast að hinum eina algilda sannleika alheimsins því að eina staðreyndin sem virðist blasa við er sú, að hann sé óendanlegur og eilífur, en af því leiðir að möguleikarnir á hverju sem er í eilífðinni séu óendanlega margir, jafnvel það að afstæðiskenningin geti verið röng og sömuleiðis kenningin um Miklahvell.
Spurning Pílatusar er sígild: Hvað er sannleikur? Við kunnum að komast nærri sannleikanum innan afmarkaðs ramma tíma og rúms, en hinn endanlegi algildi sannleikur er okkur sennilega jafn fjarri og hann var Pílatusi, þrátt fyrir allar framfarirnar sem orðið hafa síðan þá.
![]() |
Tólf ára með hærri greindarvísitölu en Einstein |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)