15.9.2011 | 19:19
Löngu tímabært.
Það hlýtur að vera hagkvæmt að stytta hringleiðina um Ísland um heila 61 kílómetra á tiltölulega ódýran hátt miðað við gerð langra brúa eða jarðganga, jafnvel þótt leiðin sé lokuð um tíma á veturna þegar umferðin er langminnst.
En þessi möguleiki hefur blasað við í áratugi en það hefur tekið ótrúlega langan tíma að hrinda þessu í framkvæmd.
En ég tel að fyrst þurfi að bæta fyrir trassaskapinn við að ljúka við að leggja bundið slitlag á hringveginn sjálfan í Berufirði og Skriðdal og drífa í því samtímis því sem Öxi verði færð í eins gott horf og unnt er.
![]() |
Vilja Öxi inn á samgönguáætlun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
15.9.2011 | 19:14
"Ég tek hestinn..."
"Ég tek hundinn!" Þetta var nafn lags, sem þau Helena Eyjólfsdóttir og Þorvaldur Halldórsson sungu á sínum tíma með hljómsveit Ingimars Eydals. Mig rámar í að ekki hafi verið ýkja erfitt að gera þennan texta, ágreiningsefnið var ákaflega einfalt.
Ég myndi hins vegar eiga í basli með að gera texta um hestadeilu þá milli sambýlisfólks, sem greint er frá á mbl.is.
Bæði eru skepnurnar stærri sem deilt er um og hér um árið hefði maður aldrei haft hugmyndaflug til að setja inn í dæmið alls konar möndl með fjármuni og svonefnda málamyndagerninga.
Ég er því ekki viss um hvort textinn um hestadeiluna hefði endað á setningunni: "...og við bæði tökum hestinn", - eða - "...og við bæði tökum hestana."
![]() |
Deilt um hesta í skilnaðarmáli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.9.2011 | 12:54
Þetta er lagið!
Sá mannauður, sem við Íslendingar eigum í kvikmyndagerðarfólki, auglýsingafólki og fjölmiðlafólki, er mikils virði fyrir okkur og mun meira virði en við gerum okkur grein fyrir.
Skortur á upplýsingum og miðlun þeirra, einkum á alþjóðavettangi, er eitthvað það bagalegasta sem getur komið fyrir þjóð á upplýsinga- og fjölmiðlunaröld, ekki aðeins vegna möguleika til að skila heiðri, velvild og viðskiptavild til okkar, heldur jafnvel enn frekar til þess að koma í veg fyrir það tjón sem skortur á upplýsinum getur valdið.
Þess vegna er það mikils virði að að aðstandenur Inspired by Iceland hafi fengið virt alþjóðleg verðlaun fyrir átak sitt og á Degi íslenskrar náttúru á morgun er vel til fundið að afhenda í fyrsta sinn fjölmiðlaverðlun fyrir umfjöllun um íslenska náttúru.
![]() |
Ráðherra sendir hamingjuóskir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)