29.9.2011 | 23:02
Fyrirtæki mótsagnanna.
Ég efast um að allir geri sér grein fyrir því hve gríðarleg bylting fyrir Íslendinga tilkoma Iceland Express var árið 2003.
Rofin var áratuga einokun á flugi til og frá Íslandi, sem var algerlega óviðunandi ástand á 21. öldinni.
Ein af ástæðum þess að Íslendingar gengu Noregskonungi á hönd 1262 var að siglingar til og frá landinu voru ekki lengur tryggar og orðnar of stopular.
Það hefur verið sagt að víglínan í baráttunni við að halda byggð í landinu liggi ekki lengur við Hvalfjörð og Þjórsá, heldur í Leifsstöð, og í alþjóðasamfélagi nútímans er ein af forsendum þess að land sé lífvænlegt fyrir fólk, að samgöngur séu sem greiðastar og frjálsastar.
Saga Iceland Express á þessu ári er full af mótsögnum. Í fréttum er greint frá fjölgun farþega og í sjónvarpi hefur mátt sá afar vel heppnaða og árangursríka auglýsingaherferð.
Á sama tíma hefur fréttum af seinkunum og uppákomum fjölgað svo mjög, að Heimir Már Pétursson upplýsingafulltrúi hefur ekki átt sjö dagana sæla.
Birgir Jónsson ætti að vita hvað hann er að segja og gera og hvað sé helst til ráða, - maður með nokkurra ára reynslu fyrr á árum af því að stýra flugfélaginu, en hverfur nú frá störfum með methraða.
Á sínum tíma lýsti Hannes Smárason því í tímaritsviðtali á eftirminnilegan hátt hvaða hugsunarháttur lægi á bak við eignarhald hans á flugfélögum og sé svipaður hugsunarháttur það sem öllu ræður hjá Iceland Express er það ekki mjög traustvekjandi.
P. S. Nú má sjá á viðbrögðum stjórnar Iceland Express að "einkavinavæðing" Birgis varðandi mannaráðningari og uppsagnir hafi verið aðal ágreiningsmálið. Þar með virðist þetta mál stefna í að verða einhvers konar leðjuslagur.
![]() |
Forstjóri Iceland Express hættur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt 30.9.2011 kl. 00:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
29.9.2011 | 19:18
Því lengur sem maður lifir, því meiri líkur...
Þegar Berlusconi segir vilja lifa að eilífu er kannski ekki víst við hvaða líf hann á, þetta jarðneska eða eitthvað annað.
Eigi hann við hið jarðneska líf ætti hann að íhuga hvort ósk hans sé raunhæf.
Að minnsta kosti þurfti ég að komast á áttræðisaldur til að átta mig á þeim sannindum, sem ég hef formað í eftirfarandi spakmæli: ´
"Því lengur sem maður lifir, því meiri líkur eru á að maður drepist."
Með öðrum orðum: Við fáum öll að gjöf þrenns konar daga, fæðingardag, lífdaga og dauðadag.
Því fleiri sem lífdagarnir verða, því meiri líkur eru á því að einhver þeirra verði að dauðadegi.
Svo einfalt er það.
P. S. Ég hitti séra Hjálmar Jónsson í kvöld og minntist á þetta og þá varð til annað spakmæli um svipað viðfangsefni:
"Afmæli lengja lífið. Því fleiri afmæli, sem menn eiga, því langlífari verða þeir."
![]() |
Berlusconi vill lifa að eilífu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.9.2011 | 13:13
Erfiðustu viðfangsefnin.
Vofveifleg andlát og slysfarir eru erfiðustu viðfangsefni þeirra stétta, sem tengjast þeim, svo sem læknum, fjölmiðlafólki, lögreglu og prestum.
Það má ekkert út af bregða og verður að fara sérstaklega varlega og hafa í huga, að tilfinningar aðastandenda og vina eru eldfimar og að reiði getur verið fullkomlega eðlileg viðbrögð þeirra, sem eiga um sárt að binda.
Á löngum ferli mínum sem fjölmiðlamaður þurfti ég að ganga í gegnum það að þurfa í máli og myndum að greina frá verstu stórslysum síðasta fjórðungs 20. aldarinnar, allt frá snjóflóðunum í Neskaupstað til snjóflóðanna miklu 1995.
Það varð að vega og meta hvert orð og hvert myndskeið og aldrei var meiri þörf á því að margtékka á því að hvergi fyndist villa né missögn.
Ég gæti nefnt mörg dæmi um þetta. Fyrsti fréttastjórinn minn, Emil Björnsson, var prestur, var því reynslunni ríkarii og miðlaði af henni. Ég reyndi mitt besta en slapp þó ekki alveg við að gera mistök.
Tel mig þó hafa verið heppinn, miðað við allan þann fjölda slysa og harmleikja, sem ég þurfti að fást við, að þau voru ekki fleiri né alvarlegri.
Eitt af því sem veldur aðstandendum oft hvað mestum sársauka er það, hvernig þeir frétta af slysinu. Við þekkjum það öll að stærstu fréttirnar, sem við fáum á lífsleiðinni, eru þannig, að við munum nákvæmlega hvar við vorum þegar þær bárust okkur, og það er alls ekki sama, hvernig það gerist.
Á tímum farsímans og netsins hefur vandinn aukist stórlega og ekki öfundsvert fyrir lögreglu, lækna og fjölmiðlafólk að meta, hvernig eigi að höndla þetta.
Mistökin, sem nú er greint frá að hafi orðið varðandi harmleikinn á Útey, eru ótrúleg og nístandi sár fyrir það fólk sem þau bitna á.
Orðin "aðgát skal höfð í nærveru sálar" eiga sjaldan eins vel við og í þessum efnum.
Sigurveig Jónsdóttir, fyrrum fréttamaður og fréttastjóri, sagði við mig að þegar hún væri í vafa um það hvað ætti að segja og sýna, færi hún eftir því sem "maginn" segði henni, þ. e. ef hún fengi ónotatilfinningu á maganum, ætti að hætta við eða bíða og sjá til.
"Maginn segir mér að við eigum að bíða".
Mín dýrkeypta reynsla var sú að ekki ætti að hika við að taka myndir og afla upplýsinga, þótt það gæti verið afar erfitt og sárt. Þarna væri um að ræða nauðsynleg gögn.
Það sem skipti máli væri ekki að myndirnar væru teknar, heldur hvort eða hvenær þær yrðu sýndar.
Þetta hafði ég til dæmis í huga þegar ég kom á vettvang hræðilegs slyss og tók myndir þar af illa útleiknu flaki sem var miðpunkturinn á hörmulegasta vettvangi slyss, sem ég hef komið á.
Ég tók fyrst nærmyndir og síðan færði ég mig lengra í burtu og hélt áfram að taka myndir þar til þær síðustu voru orðnar afar víðar og sýndu mjög lítið.
Ég fór síðan yfir myndirnar með fréttastjóranum og við ákváðum að sýna ekki þær myndir, sem teknar voru næst flaki farartækisins, sem um ræddi, og heldur ekki myndirnar sem voru teknar aðeins fjær, heldur myndirnar sem voru teknar það fjarri, að þær sýndu nokkurn veginn nógu mikið til að vera nothæf heimild, en að aðstandendur, sem sæu þær í sjónvarpinu, fengju þá tilfinningu, þegar þeir sæu þær, að við hefðum sýnt þeim tillitssemi í myndbirtingunni.
Þetta tókst, - ég vissi af biturnni reynslu annarra, að þetta var stórmál, og að ekkart mátti útaf bregða.
Niðurstaða: allan efa á að túlka aðstandendum í vil.
![]() |
Sagt að börn þeirra væru á lífi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)