Eftirhrunsbylgja.

Miðaldra valda- og fégráðugir karlmenn, hin ríkjandi stétt tímans fyrir Hrun og aðdraganda þess, var táknmynd þess. Táknmynd tímans eftir Hrun verður því að sama hátt innreið hæfileikaríkra kvenna þar sem hinum gömlu táknum verður skipt út.

Nú erum við komin með konur í hlutverki forsætisráðherra, forseta Alþingis og biskups Íslands.

Ég hygg að í þessu felist skýringin á miklu fylgi Þóru Arnórsdóttur strax í upphafi kosningabaráttu til embættis forseta Íslands.

Þegar ég var spurður út í þetta í Silfri Egils áður en framboð Þóru og Herdísar Þorgeirsdóttur komu fram, svaraði ég því til að þarna úti væri einhver ung, frambærileg og klár kona sem myndi birtast þjóðinni.

Tilkoma vel menntaðra og hæfra kvenna hefur birst víða að undanförnu. Á fundum um orku- og náttúruverndarmál í Hveragerði og í Hafnarfirði í vetur birtust til dæmis tvær öflugar konur, bæjarstjórar í Hveragerði og Vogum, sem fluttu mál sitt vel af þrótti og kunnáttu og ég hafði ekki haft hugmynd um að væru til og létu til sín taka.

Með þessu er ég ekki að segja að karlar eigi ekki erindi lengur í þjóðfélagsmálum og séu óalandi og óferjandi, - heldur aðeins það, að það fer sem betur fer ákveðin og nauðsynleg bylgja um þjóðfélagið í kjölfar Hrunsins sem síðar mun leita jafnvægis eftir að vonandi verðu búið að hreinsa til og gefa spilin upp á nýtt.  

  


mbl.is Agnes næsti biskup Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Andófsmenn í Sovét töldust geðveikir sem og Rudolf Hess.

Þekkt er, að eitt af úrræðum stjórnvalda í Sovétríkjunum varðandi andófsmenn var að láta úrskurða þá geðveika og loka þá inni á geðveikrahæli. Auðvelt var fyrir geðlækna sem trúðu á hina guðdómlegu stjórnskipan landsins að komast að þessari niðurstöðu.

Þegar búið var að lögfesta og tryggja að stjórnskipunin og framkvæmd hennar væri fullkomin og sú langbesta í heiminum hlaut hver sá, sem efaðist um þetta að vera bilaður.

Þegar Rudolf Hess flaug til Bretlands fyrir 70 árum til þess að reyna að koma á friði milli Þjóðverja og Frakka lýsti Hitler því yfir að hann þjáðist af ofskynjunum og væri ekki með réttu ráð.

Anders Behring Breivik er það óskiljanlegt hvernig nokkrum detti í hug eða geti komist að þeirri niðurstöðu að hann sé geðsjúkur og óður fjöldamorðingi, rétt eins og Hitler gat ekki ímyndað sér annað en að Hess væri kolklikkaður að láta sér detta það í hug að gera tilraun til að koma á friði.

Raunar er ég í hópi þeirra sem tel það umdeilanlegt að úrskurða Breivik ósakhæfan og minni á að verstu fjöldamorðingjar nasista voru taldir sakhæfir, líka þeir sem ekki gátu borið það fyrir sig að þeir hefðu verið að framfylgja skipunum samkvæmt ríkjandi heraga.

Spurningin um mörk geðveikinnar hefur ávallt verið athyglisverð og einhver eftirminnilegasta, grátbroslegasta og beittasta dæmið um geðveiki styrjalda og manndrápavar kvikmyndin "Catch 22".


mbl.is Telur geðlæknana í andlegu ójafnvægi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Margar einstæðar þýskar flugvélar.

Ekki verður það af Þjóðverjum skafið að þeir komu fram með margar einstæðar flugvélar í stríðinu.

Besta og öflugasta orrustuflugvél stríðsins var Messershmitt 262 sem jafnframt var fyrsta orrustuþotan sem notuð var í hernaði. Hún var ekki tekin í notkun fyrr en síðla árs 1944 og þá skorti eldsneyti og flest annað til að nota hana í þeim mæli sem hefði getað orði fyrr í stríðinu og breytt gangi þess þótt lokaúrslitin hefðu orðið þau sömu.

Heinkel He 219 var fyrsta hervélin sem var búin búnaði til að skjóta flugmönnunum út úr vélinni og jafnframt eina hervél Þjóðverja í stríðinu sem var með nefhjól. Aðeins 294 voru framleiddar.

Hitler þráði mjög að láta smíða vél sem gæti flogið til árása á Bandaríkin og hefnt loftárása á Þýskaldn og voru tvær vélar smíðaðar undir lok stríðsins samkvæmt kröfum Foringjans um "Amerika bomber."

Önnur þeirra, Junkers Ju-39 var sex hreyfla og sagt var að hún hefði flogið eina reynsluferð yfir Atlantshafið upp að austurströnd Bandaríkjanna og til baka aftur, en skriflega og pottþétta staðfestingu skortir um það hvort hún gerði þetta raunverulega. Getuna hafði hún en kom það seint fram að Þjóðverjar voru búnir að missa Atlantshafsströnd Frakklands úr greipum sér þegar hún varð nothæf og því kom aldrei til þessara árása.

Þjóðverjar voru eina stríðsþjóðin sem átti langdræga fjögurra hreyfla nothæfa hervél í byrjun stríðs en það var Focke-Wulf Fw200 Condor, sem sökkti fleiri skipum veturinn 1940 til 1941 en allir kafbátar Þjóðverja. Winston Churchill nefndi hana "The scourge of the Atlantic" eða bölvald / plágu Atlantshafsins.

Vélin var, eins og sprengjuflugvélin Heinkel He-111 var upphaflega hönnuð sem farþegavél og Condor-flugvél flaug í ágúst 1938 í einum áfanga frá Berlín til New Yourk alls 6380 kílómetra langa leið á tæpum 25 klukkustundum og síðan til baka í einum áfanga á tæpum 20 klukkustundum.

Vél af þessari gerð sökkti olíuskipinu El Grillo í árás á Seyðisfjörð og fyrsta Condor-vélin, sem skotin var niður, var skotin niður yfir Hallmundarhrauni. 

Aðeins 276 Condor vélar voru framleiddar.

Messerschmitt Me 261 var hönnuð til þess að fljúga með Ólympíueldinn í einum áfanga árið 1940 frá Berlín til Tokyo, þar sem átti að halda leikana 1940, alls 11000 þúsund kílómetra leið, en aldrei varð af leikunum né því að þessi flugvél kæmist í gagnið.

Í lokin má svo geta þess að á stríðsárunum smíðuðu Þjóðverjar prótótýpu af fyrstu torséðu (Stealth) hervélinni, hálfri öld áður en Bandaríkjamenn smíðuðu slíka vél.


mbl.is Sjaldgæf flugvél á hafsbotni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 25. apríl 2012

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband