Svona á að gera þetta!

Það er alltaf gaman að því þegar fólk kemur skemmtilega á óvart. Og annað er ekki hægt að segja um frammistöðu ráðherranna Sigurðar Inga Jóhannsonar og Lilju Alfreðsdóttur í kvöldverðarboðinu hjá forsetahjónum Bandaríkjanna.

Sumir hafa séð ákveðna samsvörun í þremur formönnum Framsóknarflokksins þeim Ólafi Jóhannssyni, Halldóri Ásgrímssyni og Sigurði Inga Jóhannssyni hvað varðar yfirbragð og talanda, sem hafi oft verið dálítið þunglamaleg og þumbaraleg.

Í upphafi forsætisráðherraferils Óla Jó uppskar það hlátur, þegar ég gantaðist með þáverandi ráðherra í hlutverkum jólasveinanna og hyskis Grýlu, og sagði í lokin: "...Lúðvík Leppur, Einar Skreppur og forsætisráðherra Leiðindaskjóða.

En þetta gerbreyttist á undra skömmum tíma þegar Óli Jó sýndi á sér alveg nýja hlið hins spaugsama, brosmilda og skemmtilega forsætisráðherra.

Halldór Ásgrímsson lumaði á góðum húmor á góðum stundum, sem of fáir fengu að njóta.

Og nú kemur Sigurður Ingi Jóhannsson og gerir svipað og Óli Jó á sínum tíma, sýnir á sér allt aðra hlið en fólk hefur kynnst áður.

Og það í hópi forsætisráðherra Norðurlandanna og bandarísku forsætishjónanna.

Takk fyrir þetta, Sigurður Ingi. Svona á að gera þetta!


mbl.is Sigurður Ingi reytti af sér brandarana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur.

Yfirvinnubann flugumferðarstjóra er dæmi um það þegar deilur fara út í þann farveg að þær bitni nær eingöngu á ákveðnum hópi fólks, og að ráðist sé á garðinn, þar sem hann er lægstur.

Almenningur lætur sér skiljanlega fátt um finnast þegar upplýst er að bannið bitni á 200 manns.

Það fylgir nefnilega ekki sögunni að um er að ræða hóp ungs fólks, sem er í rándýru námi til að ræktuð sé grasrót íslenskra flugmála, flugmennirnir sem standa eiga að endurnýjun þess grundvallar flugs, sem felst í hæfum flugmönnum.


mbl.is Skelfileg áhrif á flugkennslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kennitöluflakk stjórnmálaflokka nægir ekki.

Sagan er í grófum dráttum þessi: Alþýðuflokkurinn 1916, Sósíalistaflokkurinn 1938,  Alþýðubandalagið 1956, Samtök frjálslyndra og vinstri manna 1970, Bandalag jafnaðarmanna 1987, Þjóðvaki 1994, Samfylkingin 1999 og Björt framtíð núna síðast.

Allt saman jafnaðarmannaflokkar, misróttækir þó, sem áttu að sameina jafnaðarmenn í einum flokki, en reyndist að mestu vera nafnabreyting, kennitöluflakk.

Ef jafnaðarmannaflokkur nær ekki hylli kjósenda er það ekki vegna þess að hugmyndir jafnaðarmanna um frelsi, jafnrétti, bræðralag og mannréttindi séu úreltar, heldur vegna þess að þeir sem berjast fyrir þessum hugsjónum hafa ekki kjörþokka eða mistekst í rökræðunni sem þarf.

Nafnbreytingar og nýjar kennitölur duga kannski um skamma hríð, en ekki einar og sér til lengdar.

Þetta minnir á það þegar efnilegum söngvara í bakröddum í sjói hjá Björgvini Halldórssyni þótti goðið ekki taka nóg eftir sér og kom á næstu sýningu Bo í skærum glimmerjakka.

Björgin veitti þessu athygli og gekk að eftirvæntingarfullum söngvaranum og ávarpaði hann.

Orðaskiptin urðu svona:

"Nýr jakki?"

"Já."

"Sama röddin."  


mbl.is „Því miður fyrir ykkur, strákar mínir“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 14. maí 2016

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband