7.7.2016 | 21:06
Við skoruðum þrjú mörk hjá gull-og silfurliðunum.
Íslenska landsliðið lék við báðar þjóðirnar sem leika úrslitaleikinn á EM á sunnudag og verða gull- og silfurlið þessa móts.
Við skoruðum eitt mark hjá Portúgölum og gerðum jafntefli við þá og við skoruðum tvö mörk í leiknum við Frakka.
Enn eitt dæmið um það að íslenska landsliðið á fullt erindi á stórmót í knattspyrnu sé áfram haldið jafn vel á spilum og hingað til.
![]() |
Frakkar mæta Portúgölum í úrslitum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
7.7.2016 | 16:03
Mikilvægt svæði við stærstu krossgötur landsins.
Þeir sem aka frá Vesturlandi, Norðurlandi og Austurlandi í gegnum höfuðborgarsvæðið til Reykjavíkur, Kópavogs, Garðabæjar og Hafnafjarðar og áfram til Suðurnesja aka þriggja kílómetra löngum kafla meðfram Ártúnshöfðahverfinu.
Þeir sem aka frá Austfjörðum og Suðurlandi til Reykjavíkur og Seltjarnarness aka sömu leið.
Af þessu leiðir að stærstu krossgötur landsins liggja við þetta hverfi, og að þegar menn tala um þéttingu byggðar nálægt miðju höfuðborgarsvæðisins er einhverja bestu möguleikana að finna í þessu hverfi.
Á kortunum tveimur hér á síðunni af meginumferðarlínunum á höfuðborgarsvæðinu, sem eru dregnar með svörtum línum, bendir blái penninn á Ártúnshöfðann.
![]() |
Ártúnshöfði verði blönduð byggð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
7.7.2016 | 09:45
Svona atvik eru engin furða, - löggan sýknuð.
Ítrekaðir sýknudómar í málum, þar sem bandarískir lögreglumenn eru sýknaðir eftir að þeir skjóta blökkumenn á svipaðan hátt og nú hefur gerst í Minnesota, virka hvetjandi á geðþóttaaðgerðir þeirra af því tagi, sem lýst er í tengdri frétt á mbl.is.
Geðþóttinn byggist á því að bara það eitt að ætla sér að ná í ökuskírteini sitt getur réttlætt þá ályktun lögreglumanns að hinn tortryggði sé að seilast eftir byssu sinni og að það sé næg ástæða fyrir lögreglumanninn til þess að skjóta blökkumanninn tafarlaust "í sjálfsvörn."
Lögreglumaðurinn er talinn hafa gilda ástæðu til að halda þetta, af því að byssueign er svo almenn vestra, að allar hreyfingar borgaranna má túlka sem fyrirætlun þeirra til að beita byssum sínum, nánast hvenær sem er og hvar sem er.
Þetta sýnir vel hvert sú krafa hinna öflugu samtaka byssueigenda vestra leiðir, að allir eigi byssur og hafi þær um hönd, jafnvel öflugustuu hernaðarhríðskotariffla, til þess "að geta varið sig."
![]() |
Skotinn af lögreglu á rauðu ljósi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.7.2016 | 00:26
Í ósamræmi við áróðurinn gegn okkur.
Lengst af þessu EM-móti hafa heyrst raddir um það að lélegt íslenskt landslið hafi komist áfram á því að leika leiðinlega varnarknattspyrnu, þar sem leikmennirnir þyrptust í vörn og hugsuðu bara um að koma í veg fyrir að betri mótherjar skoruðu.
Þessar raddir hljóta að þagna þegar nú liggur fyrir að íslenska liðið er eina liðið sem hefur skorað mörk í öllum leikjum sínum og alls átta mörk.
Og þessi mörk hafa ekki verið einhver vítaspyrnumörk heldur gullfalleg mörk og flest að afloknum flottum sóknarleik, stundum með allt að átta sendingum eftir endilöngum vellimum.
![]() |
Ísland eina liðið sem skoraði í öllum leikjum sínum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)