19.2.2017 | 19:45
"Meiriháttar þorrablót."
Sennilega finnst mörgum útlendingum það manndómsraun að smakka í íslenskan þorramat, enda lítur hann ekkert sérlega vel út.
Miðað við það hvað maður er mikil skræfa við að leggja í að borða framandi erlendan mat er ekki hægt annað en að dást að þeim útlendingum, sem leggja sér íslenska "viðbjóðinn" til munns.
Þegar Mike Tyson mátti búast við að fara í fangelsi fyrir að bíta stykki úr eyra Evanders Holyfields 1997 lagði ég til að honum yrði veitt landvist á Íslandi með eftirtöldum rökum.
Ef Tyson til Íslands náum við nú í vetur, -
því norpandi´í fangelsi er ævi hann ill, -
á þorrablótum hér getur hann bætt um betur
og borðað eins marga svarta hausa´og hann vill.
En nú var þorraþræll í gær og ég kveð þorrann á facebook með laginu "Þetta er meiriháttar þorrablót" sem líka má finna á Youtube undir mínu nafni.
![]() |
Smökkuðu þorramat (myndskeið) |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.2.2017 | 10:11
Hvað voru margir skotnir í Svíþjóð og í Bandaríkjunum í gær?
Ætli það séu ekki um 50 manns skotnir á hverjum degi að jafnaði í Bandaríkjunum án þess að það þyki nokkur frétt. Enda eru 250 milljónir skotvopna í landinu. Hvað eru margir skotnir í Svíþjóð? Hverjir voru þeir, sem Trump Bandaríkjaforseti segir að hafi verið skotnir þar í gær?
Á hvaða mælikvarða sem er, er tíðni drápa með skotvopnum í Bandaríkjunum og skotvopnaeign sú langhæsta á Vesturlöndum, drápa á hverja þúsund íbúa eða drápa í heild.
Það kannast enginn við að neinn hafi verið skotinn í Svíþjóð í fyrrakvöld á sama tíma sem forseti Bandaríkjanna heldur því fram að það hafi verið gert í þeim mæli að hann hrópi upp á stórum útifundi: "Sjáið þið hvað gerðist í Svíþjóð í gærkvöldi!"
Og heldur því fram að hann sé að gera Bandaríkin miklu öruggari. Hann hefur fundið upp nýjan veruleika, sem er hinn eini rétti. Allt annað eru "falsfréttir" og "falsveruleiki."
![]() |
Sjáið hvað gerðist í Svíþjóð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)