Eitt einkennilegasta mál síðari ára.

Deila ALS og Icavia er eitt einkennilegasta deilumál síðari ára, bæði uppleggið og það hvernig málið hefur þróast. 

Það er eitthvað bogið við allt málið, það er sú tilfinning sem leikmenn fá við að sjá málavexti reifaða og sjá þau sjónarmið sem sett eru fram í því. 

Það er eitthvað bogið við þetta allt, er það ekki?


mbl.is Hvað verður um þessa flugvél?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki veitir af. Þótt fyrr hefði verið.

Fyrir tveimur áratugum var hægt að syngja þetta um verðmæti náttúruundra Íslands: 

"Við vitum ekki´enn að við eigum í raun 

auðlind í hraunum og söndum, 

sléttum og vinjum og urðum og ám 

og afskekktum, sæbröttum ströndum."

Jack D.Ives, þekktur vísindamaður sem vann lengi fyrir UNESCO vegna Heimsminjaskrár stofnunarinnar lýsti því í fyrirlestri fyrir tæpum 20 árum, að Vatnajökull og svæðið umhverfis hann ætti tvímælalaust heima á þessari skrá, sem vekur ekki einasta athygli á viðkomandi fyrirbæri um víða veröld, heldur skapar heiður fyrir land og þjóð sem síðan getur orðið hrein efnahagsleg auðlind í krafti frægðar og viðskiptavildar. 

Það var ekki fyrr en í kjölfar tveggja íslenskra eldgosa, sem skóku flugsamgöngur víða um lönd 2010 og 2011 sem náttúruundur Íslands komu landinu svo rækilega á kortið að af því spratt mesti efnahagsuppgangur í sögu landsins. 

Á síðustu níu árum hafa streymt inn í landið gjaldeyristekjur sem nema samtals tveimur til þremur þúsundum milljóna króna. 

Þess vegna veitir ekki af að huga að því að standa undir því hlutverki að varðveita og vernda þau verðmæti sem eru undirstaða þessarar verðmætasköpunar. 

Rannsókn hefur sýnt að fjárveitingar til þjóðgarða skila sér minnst tuttugufalt og það blasir við að þrír milljarðar innan við eitt prósent af því sem náttúruverðmætin gefa af sér. 

 


mbl.is Þrír milljarðar til verndar náttúru
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Litlu verður Vöggur feginn.

"Metánægja með Trump" segir í fyrirsögn um niðurstöður skoðanakannannar um ánægju eða óánægju með störf Donald Trumps. En þegar rýnt er í fréttina kemur í ljós að enginn forseti í sögu nútíma skoðanakannana hefur haldið jafnmörgum jafnóánægðum jafnlengi, en tölurnar eru: 

Ánægðir:  44%

Óánægðir: 53%

Ef jafn óhagstæðar tölur eru tilefni til að fagna fyrir Trump, má segja að hið fornkveðna gildi, að litlu verður Vöggur feginn. 

 

 

 


mbl.is Metánægja með Trump
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mætti prófa járnkarlskast.

Þegar síðuhafi var í sveit sem strákur, reyndum við strákarnir á bænum að stunda sem flestar íþróttir. Frændinn á bænum bjó til skemmtilega þríhyrnigslaga mælistiku, sem líktist sirkli þar sem réttur metri var á milli oddanna. 

Með þessu mældi hann 100 metra og 400 metra til að hlaupa. Ellefu ára voru tímarnir og Hvammsmetið 17 sekúndur og 1 mín og 44 sekúndur.  

Búnar voru til heimasmíðaðar hástökks / stangarstökkssúlur og stangarstökkið framkvæmt með hrífulausu hrífuskafti. Kúla, kringla og bolti voru á bænum. 

Hvammsmetið þegar við vorum 12 ára var 1,44 m í stangarstökkinu og átti Dinni það. 

En langvinsælasta greinin var járnkarlskast. 

Það hafði þann kost, að það kostaði lítið rými og járnkarlinn var af staðlaðri stærð. 

Hvammsmetið var 7,44 m og karlinum hent með báðum höndum. 

En það var líka hægt að nota tvo aðra stíla, sama og í spjótkasti, eða að kasta "utanhandar."

 


mbl.is Axarkast í Heiðmörk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 8. júlí 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband