20.8.2019 | 21:23
Sum hjólin mjög öflug, t.d. Sleipnir á Kaldadal.
Bæði venjuleg fjallareiðhjól og fjallarafhjól eru afar öflug farartæki og njóta lipurðar sinnar. Óskar Guðmundsson hefur unnið afrek með hjólaferð sinni eftir endilöngu hálendinu.
Hann segist hafa örmagnast tvisvar á dag, og það er áreiðanlega rétt hjá honum, ef marka má reynslu síðuhafa af því að hjóla á reiðhjóli sumarið 1956 á sjö klukkustundum frá Reykjavík til Glitstaða í Norðurárdal, sem þá var 160 kílómetra leið.
Strax í botni Hvalfjarðar var allur kosturinn, sem var meðferðis í töskum á bögglaberanum, uppétinn, og þurfti að endurnýja hann aftur í Hvítárskála.
Gísli Sigurgeirsson rafeindafræðingur í Reykjavík hefur smíðað fantagott fjallarafreiðhjól með drifi á báðum hjólum, bæði að framan og aftan.
Meðfylgjandi á að vera mynd af þessu hjóli, sem hann kallar Sleipni, þar sem það er á slóð Sörla hans Skúla, sem þeyst var á hér fordðum daga í frægri kappreið.
Ekkert mál að hjóla yfir hálendið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.8.2019 | 17:14
Árekstrahætta á hvern ekinn kílómetra fer ekki eftir lengd aksturleiðar.
Í tengdri frétt af skondnu óhappi rétt hjá bílaleigunni, sem á bílinn, er talsvert rætt um það hve óvenjulegt sé að árekstur verði alveg í hlaðinu hjá bílaeigandanum.
Þetta rímar saman við það, að oft hyllast ökumenn til þess að sleppa því að spenna bílbeltin, á stuttum akstursleiðum, til dæmis innanbæjar.
Rökin fyrir því eru sú að því lengri sem leiðin sé, því meiri líkur séu á því að óhapp verði.
En þegar tölur eru skoðaðar sést, að langtum fleiri óhöpp verða samanlagt á stuttum leiðum innanbæjar en á leiðum utanbæjar, einfaldlega vegna þess að meðaljóninn ekur í kringum 80 prósent aksturs síns og jafnvel meira innanbæjar.
Það er ekki aðeins jafn mikil áhætta á óhappi á hverjum kílómetra innanbæjar og utanbæjar, heldur meiri jafnvel meiri innanbæjar vegna þess hve umferðin er miklu þéttari og meiri.
Hér um árið settust mæðgur upp í bíl fyrir utan skrifstofur eins tryggingafélagsins og ætluðu að færa sig stuttan spöl. Þetta var það stutt vegalengd að þær spenntu ekki bílbeltin.
En samt lentu þær í árekstri og meiddust.
Ekkert smá bras að ná bílnum niður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.8.2019 | 07:53
Jðklarnir í Himalaya skipta tvo milljarða manna máli.
Það, að frægustu jöklar Íslands hverfi er að vísu mikill sjónvarsviptir, en þó smámunir miðað við það sem gerist í hamfarabráðnun jökla Grænlands, Suðurskautslandsins og Himalaja.
Frá Himalayafjöllum renna fjögur stærstu fljót Suðaustur-Asíu, og vorleysingarnar í jöklunum, sem þær koma frá skipta um tvo milljarða manna miklu máli.
Hverfi þessir jöklar eða rýrni stórlega hefur það einfaldlega svo gríðarlega mikil áhrif á landbúnað hag meira en fjórðung mannkyns, að það er mikill ábyrgðarhluti að láta sem ekkert sé.
Framtíð jökla ógnað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)