30.8.2019 | 18:03
Umhverfisvernd í rányrkju og loftmengun?
Þá liggur það fyrir eftir nýjustu yfirlýsingar Bandaríkjaforseta að hámark þess að vera umhverfissinni felst í því að auka sem mest vinnslu á jarðefnaeldsneyti, sem er óendurnýjanleg orkulind og felur í sér hreina rányrkju.
Og samtímis þessari umhverfisstefnu fylgir henni sívaxandi loftmengun.
Vill ekki fórna bandarískum auði fyrir loftslagsdrauma | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.8.2019 | 08:42
Lenging austur-vestur-brautar yrði stórbót fyrir flugvöllinn.
Lenging austur-vestur-flugbrautar Reykjavíkurflugvallar með Suðurgötu í stokk undir brautina fæli í sér stórbót a flugvellinum.
Með því yrði hægt að minnka notin á norður-suður-brautinni um meira en helming og þar með losna við flug yfir kvosina flesta venjulega veðurdaga.
Hvössustu vindar, sem leika um völlinn, eru úr austan- og suðaustanátt og aðflug og fráflug austur-vestur-brautarinnar liggja annars vegar yfir sjó og hins vegar yfir auð svæði í Fossvogsdal.
Í hvössustu vindáttunum myndi flugvöllur í Hvassahrauni lokast vegna nálægðar þess vallarstæðis við 621 metra háa Lönguhlíð.
Lðng austur-vestur-braut myndi gera Reykjavíkurflugvöll að góðum varaflugvelli fyrir Keflavíkkurflugvöll og meira en hundrað milljarða framkvæmd í Hvassahrauni óþarfa.
Efni af spítalalóð fari í Skerjafjörð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)