Líf á óendanlega mörgum plánetum?

Ef eilífðin og óendanleikinn eru grunnur alheimsins, t.d. vegna þess að utan þess alheims sem manninum er þekktur, séu fleiri alheimar, kannski óendanlega margir, eru líkurnar á því að líf sé á öðrum plánetum en jörðinni óendalega miklar.  Eða hvað?

Þess vegna er þessi setning um fyrirbærið, sem margir kalla alvald, i ljóði um líf og dauða, svohljóðandi:  

"Vítt um geim, um lífsins lendur

lofuð séu´hans verk.

Felum okkur í hans hendur 

æðrulaus og sterk."

 


mbl.is Fundu plánetu sem er mögulega lífvænleg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Koma pálmatréní Vogabyggð eftir allt? Og krókódílar á Húsavik?

Það var ekki lítið sem rætt var um hugmndina um pálmatrén í eins kona glerturnum í Vogahverfi ekki alls fyrir löngu og þótti mörgum hugmyndin fáránleg. 

Þess vegna verður fróðlegt að sjá hvernig pálmatrjánum fimm reiðir af í Laugardal. 

Þetta leiðir hugann að hugmyndinni um krókódílagarð á Húsavík, sem kom upp fyrir um 20 árum og var slegin út af borðinu. 

Síðuhafi renndi þá fyrir tilviljun fram á krókódílagarð í Klettafjöllunum í Kólóradó ekki langt frá þorpinu Manassa, sem fyrsta alþjóðlega stórstjarna íþróttanna, Jack Dempsey, kenndi sig við (The Manassa mauler).  

Auðvitað var tilvaldið að taka mynd af krókódílagarðinum og sýna heima. 

En ekkert varð af því að sýna ferðafólki krókódíla á Húsavík.  


mbl.is Pálmatré í Laugardal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 9. ágúst 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband