15.9.2019 | 16:29
"Fyrsti vetrarsnjórinn" verður varla á vetur setjandi.
Þegar litið er á veðurspána fyrir næstu viku sést, að það sem kallað er "fyrsti vetrarsnjórinn" verður hugsanlega ekki vetrarsnjór, því að spáð er 8-12 stiga hita út vikuna í Reykjavík.
Þar að auki sýnist þessi nýi snjór ekki vera þykkari en það að hann er þegar farinn að láta á sjá.
Og hvarf skaflsins í Gunnlaugsskarði og fróðlegur pistill Trausta Jónssonar um það hvernig sumarið í Reykjavík, ef miðað er við 9 stiga meðalhita, hefur lengst um meira en þrjár vikur frá því sem áður var.
Fyrsti vetrarsnjórinn fallinn á Esjuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.9.2019 | 00:26
"Búnir að vita af þessu..." , já, af hættu í fimm ár! Ekki einsdæmi.
Er það furða þótt það ylli reiði hjá Sigurjóni M. Egilssyni að hlusta á það sem sjálfsagðan hlut hjá talsmanni Vegagerðarinnar, að hættulegt slitlag í hringtorgi sé búið að vera þar óhreyft í fimm ár og ekki enn komið að því að gera neitt í málinu.
Sigurjón slasaðist illa á vélhjóli á torginu þegar hann féll á gölluðu og flughálu slitlagi fyrir fimm árum, missti vinnuna og er 75 prósent öryrki síðan.
Og það mun vera slatti af fólki, sem hefur slasast þarna vegna þessara óafsakanlegu aðstæðna.
Langflest meiðsl á vélhjólum verða á höfði og ökklum. Þess vegna eru hlífðarhjálmar og vélhjólastígvél með ökklavörn efst á lista vélhjólamanna. Þar á eftir geta komið hanskar með vörn, hnéhlífar, leðurgalli með vörnum, þar á meðal öflugri bakverju.
En það er engin leið að sjá það fyrir hver meiðslin verða nákvæmlega, því að menn geta lemstrast og brotnað hvar sem er á líkamanum í vélhjólaslysum.
Í tilfelli Sigurjóns voru það hvorki ökklar né höfuð, sem sködduðust, heldur rif og öxl.
Og tilfellin eru fleiri og víðar, vegna þess, að þegar verið er að endurnýja slitlag, eru yfirleitt engin viðvörunarskilti sett upp þótt nýtt slitlag geti verið flughált eins og svell, ef það er blautt.
Síðuhafa er kunnugt um dæmi þess að vélhjólamaður, sem kom óviðbúinn inn á slíkt slitlag, lenti í svo alvarlegu slysi, að hann glímdi við afleiðingarnar í áratug.
Annar ökklinn brotnaði svo gersamlega í mél, að það þurfti margar og ítrekaðar aðgerðir til að koma honum í svipað horf.
Að sjálfsögðu á að setja upp rækileg hálkumerki þar sem svona slitlag byrjar.
Síðuhafi hefur reynslu af því, að á einum stað þar sem aka þurfti af stað upp brekku við byrjun slíks slitlags við umferðarljós, var erfitt að koma í veg fyrir það að spóla á hjólinu, jafnvel þótt gætt væri ítrustu varkárni.
Litlu munaði í því tilfelli, og um vélhjól gildir einfaldlega annað en bíl; það er bannað að detta. Punktur.
Síðan má bæta því við að síðuhafi axlarbrotnaði í upphafi árs vegna þess að annar maður á rafreiðhjóli hjólaði skyndilega í veg fyrir hann á hjólastíg, var aðalástæðan að vísu sú að maðurinn var upptekinn við að horfa beint niður fyrir sig til að lesa af mæli (!) og sá mig því ekki koma á móti sér, en útmáðar merkingar á miðlínu vegna viðhaldsleysis, sem voru horfnar þar sem við mættust, voru meðvirkandi orsök.
Víða von á fyrstu hálku haustsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)