28.7.2021 | 17:16
Fagradalsfjall stendur eldgosavaktina núna.
Nokkrar af helstu eldstöðvum landsins bíða nú í röð eftir því að létta á sér, nokkur þeirra "komin á tíma."
Á meðan er eins og eldstöðin við Fagradalsfjall standi nokkurs konar eldgosavakt þessi dægrin og séð frá Borgrholti í Grafarvogshverfi var útsýnið ekki amaleg út um gluggann til suðurs.
Afstaðan á milli myndatökustaðarins nú síðdegis varð til þess að tilsýndar er eins og það sé Keilir, sem sé að verki.
![]() |
Skjálfti undir Mýrdalsjökli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.7.2021 | 07:59
Flöskuhálsástand um árabil.
COVID-19 hefur leitt í ljós allt frá upphafi, að í heilbrigðiskerfum nútíma þjóðfélaga hefur leynst flöskuháls í formi stíflu á mótttöku og meðferð sjúilinga, sem lýsti sér á fyrstu stigum í því að vísa þurfti sjúklingum frá af handahófi til að þjást og deyja líkt og gert var á tímabili í Svíþjóð, ítalíu, í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna.
Þetta gekk svo langt að sums staðar þurfi að vísa dauðu fólki frá, opna fjöldagrafir og glíma við vangetu útfararfyrirtækja og skorti á hæfu starfsfólki.
Nú glyttir enn í tennurnar á þessum illskeytta vágesti í formi síendurtekins hættustigs.
![]() |
Ekki furða að það ríki hættustig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)