Eins og vel skrifuð spennusaga.

Tveir sigrar í tveimur fyrstu leikjunum á EM gefa vonir um að kannski fáum víð nú enn eitt stórt ævintýr hjá íslenska landsliðinu í handbolta, sem skiljanlega hefur átt erfitt með að komast á ný í þær hæðir sem það komst með silfrinu í Peking hér um árið. 

Leikurinn í kvöld hafði flest það að bjóða, sem felst í góðri sjónvarpssýningu, og var þar ekki aðeins um gott framlag íslensku leikmannanna að ræða og grípandi atburðarás, heldur ekki síður hins fyrrverandi landsliðsmanns Einars H. Jónssonar, sem lýsti honum. 

EM-stofan er vel skipuð, og ástæða til að þakka fyrir sig.  


mbl.is Ísland með fullt hús eftir mikla spennu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

15 klst ferð Reykjavík-Akureyri-Reykjavík: Allar tegundir vetrarveðurs.

Í upphafi búsetu hvers þess, sem býr á Íslandi, þarf að negla strax niður einfalda veðurfræðilega staðreynd: Að meðaltali í janúarmánuði er lægsti loftþrýstingur á jörðinni fólginn í lægð skammt suðvestur af landinu, en skammt norðvestur af landinu er önnur af tveimur hæstu hæðunum, Grænlandshæðin.

Afleiðing: Gríðarlegur þéttleiki þrýstilína á veðurkortum, mestu vindar og umhleypingar jarðar. 

Í gær ókum við Friðþjófur Helgason frá Reykjavík til Akureyrar og til baka aftur í tilefni af opnun heilmikillar myndasýningar þar, sem Ólafur Sveinsson stendur fyrir, og Friðþjófur á drjúgan hlut í. 

Vegna covid er sýningin þrískipt á milli Glerártorgs, Hofs og Amtbókasafnsins. 

Þetta býður upp á þægilegan sunnudagstúr til að njóta sérstæðrar og eftirminnilegrar blöndu af ljósmyndasýnningu og kvikmyndasýningu á því ári, þegar liðin verða rétt tuttugu ár síðan gerðir voru samningar um stærsta mannvirki Íslandssögunnar, sem jafnframt hafði í för með sér mestu mögulegu óafturkræf og neikvæð umhverfisáhrif. 

Á leiðinni norður og til baka bauð veðurfræðidild íslenskrar náttúru upp á stórbrotið sýnishorn af íslensku vetrarverð. 

Kvöldið fyrir brottför var raðað í bílinn og gert klárt. 

Það tók tæpa klukkustund, og var sjö stiga hiti og úrhellisrigning þegar verkið hófst en komið niður undir frostmark í slydduhríð í lokin klukkustund síðar! DSC09696

Afsakið upphrópunarmerkið, því þetta er fullkomlega eðlilegt íslenskt janúarveður. 

Á leiðinni norður byrjaði ferðin á flughálku, en þegar komið var norður fyrir heiðar tók við frost og heiðríkja með dásemdar fegurð, hvert sem litið var. 

Myndin var tekin út um bílglugga á löngu færi vestast í Línakradal. 

Síðar á leiðinni var ekið í skafrenningi um Öxnadalsheiði. 

Á Akureyri var flughálka en það tók að hvessa á bakaleiðinni með fjúki og léttum lausasnjó. 

Allt í einu bar svo við, að komið var inn á alveg úrkomulaust svæði með marauðri jörð og logni og blíðu. 

Á leiðinni frá Staðarskála suður yfir Holtavörðuheiði var "hvíta kafald" eins hún Manga gamla hefði lýst því hér um árið og sáust oft ekki handaskil og ökuhraðinn hvað eftir annað á núlli, einkum þegar mætt var stórum flutningabílum. 

Rauð tala var komin á vindmælinum undir Hafnarfjalli og hríðin hafði breyst í slyddu og rigningu í lokin með hálku, sem hefur sent meira en fimmtíu manns  á bráðamóttöku í Reykjavík. 

 

 


mbl.is Hálka víða um land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"...við öndum öll að okkur sama loftinu..."

Meitluð setning John. F. Kennedys eftir Kúbudeiluna í einni af síðustu ræðum hans eru fyrir löngu orðin sígild:  "Við lifum öll á sömu plánetunni, öndum öll að okkur sama loftinu, er öllum annt um afkomendur okkar og öll erum við dauðleg."


mbl.is Höggbylgjan mældist á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. janúar 2022

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband